Björgunarhundasveit Íslands var kölluð út til leitar að ferðamanni í Esjunni. Maðurinn var í símasambandi og var óslasaður. Maðurinn fannst skömmu síðar við Þverfellshorn og var fylgt niður af björgunarsveitarmönnum.

Þann 16-22.mars síðastliðinn var haldið árlegt vetrarnámskeið
Björgunarhundasveitar Íslands. Námskeiðið var haldið að Gufuskálum en svæðin
sjálf voru við rætur Snæfellsjökuls. Ekki var hægt að kvarta yfir snjóleysi að
þessu sinni og reyndi bæði á tæki, hunda og menn á námskeiðinnu sökum veðurs.
Að venju var fræðsla og fyrirlestrar í enda dags. Harpa Grímsdóttir fræddi
okkur um hlutverk Snjóflóðaseturs Vestfjarða sem gegnir veigamiklu hlutverki í
rannsóknum og forvörnum snjóflóða á Íslandi. Hún fræddi okkur einnig um
ýmislegt er tengist snjóflóðum, hvernig þau myndast og hvernig er best að
varast þau. Ásmundur Jónsson fór yfir nokkra punkta tengdum fyrstu hjálp þegar
komið er að snjóflóðum t.a.m. ofkælingu og fleira. Einnig var sýnt einkar
athyglisverð heimildamynd sem ber heitið Norð
Vestur
eftir önfirska leikstjórann Einar Þór Gunnlaugsson. Myndin fjallar
um snjóflóðin á Flateyri og Súðavík og því björgunarafreki sem þar var unnið.
Unglingasveit Björgunarfélags Akranes voru við æfingar 16-18. mars á Gufusálum
og höfðu áhuga á að fá smá kynningu á starfi okkar og kom það í hlut
Ingimundar, Maurice og Frosta að kynna fyrir þeim starf  BHSÍ. Mikill áhugi var á starfinu innan
hópsins og þar leynast án efa framtíðar björgunarfólk og er það von okkar að
einhverjir þeirra taki þátt í að stuðla að þjálfun og framgangi hunda í
björgunarstarfi í náinni framtíð. Eins og alltaf komu fjölmargir að framkvæmd
og skipulagningu námskeiðisins og kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir
allan sinn tíma og fyrirhöfn. Hugrún Jóhannsdóttir frá Hæl galdraði fram
dýrindismáltíð á hverju kvöldi sem var gerð vel skil af svöngum og þreyttum félögum.
Kunnum við henni bestu þakkir fyrir frábæran mat og skemmtilega samveru.

Vetrarnámskeið eru mikilvægur þáttur í okkar starfi sem
björgunarteymi þ.e. hundur og maður. Þar æfum við m.a aðkomu að snjóflóði og
lærum að bera okkur rétt að í aðstæðum sem eru oft á tíðum öfgafullar og
erfiðar. Náttúruhamfarir líkt og þau mannskæðu snjóflóð sem hafa fallið á byggð
á Íslandi eru sem betur fer ekki algengur atburður.  Sú reynsla sem þar myndaðist hefur sýnt okkur
að öflugustu ,,tækin“ við leit í snjóflóðum er án efa vel þjálfað teymi hunda
og manna sem í samvinnu við aðrar bjargir vinna oft á tíðum ótrúleg
björgunarafrek. Það er því mikilvægt að halda uppi vönduðu og metnaðarfullu
starfi við þjálfun björgunarhunda við hvaða aðstæður sem koma upp. Á
vetrarnámskeiðum er ekki eingöngu æft leit og björgun heldur þreyja mörg teymi
próf til að kanna stöðu sína og kunnáttu.
Eftirtalin teymi luku prófi á meðan á námskeiðinu stóð.

 

Snjóflóðaleit C-flokkur:

Guðrún Katrín og Líf

Rolando og Ýra

Halla og Pjakkur

Elli og Kvika

 

Snjóflóðaleit A flokkur

Jónas og Keano

Ólína og Skutull

Hafdís og Breki

Viðar og Tinni

 

Snjóflóðaleit A-endurmat:

Maurice og Stjarna

Nick og Skessa

Valur og Funi

Dóri og Skuggi

Þröstur  og Lassi A
endurmat

Emil og Gríma A endurmat

 

Skotta og Elín hittust fyrst á æfingu á Akureyri 1997. þá var Skotta aðeins
nokkura mánaða og var ekki hundurinn sem Elín ætlaði að skoða heldur var
eigandinn með aðra tík sem hann vildi láta hana hafa en Skotta ærslabelgur
sannfærði Tóta sem var með í ferðinni um að hún væri sú eina rétta. Þær
vinkonurnar tóku svo til við æfingar saman og sennilega er vandfundinn sá
hundur sem hefur lagt sig eins fram um að þóknast eiganda sínum. Þrátt fyrir að
vera alla tíð eins og gufurugluð þá var ótrúlega létt að kenna henni. Hún tók
sitt fyrsta c-próf í snjóflóðaleit aðeins átta mánaða gömul sem gerði það að
verkum að leiðbeinendur fóru að endurskoða reglur um aldur hunda í úttektum. C-
próf í víðavangsleit fylgdi í kjölfarið en eins og hjá svo mörgum þurfti nokkrar
tilraunir við B-prófið en þegar því var náð var ekki aftur snúið og við tóku ár
útkalla og úttekta, ótal námskeið og útköll þar sem Skotta stóð sig alltaf með
prýði. Hún var alltaf jafn glöð og óðfús í að vinna og svo hlýðin að hún hafði
sérstaka undanþágu til að vera ekki í taum að og frá svæði. Um hana var ort
“Þarna kemur Skotta sem kann ekki að ganga í spotta”. Skotta var heiðruð af
Hundaræktarfélagi Íslands árið 2007 sem Þjónustuhundur ársins. Skottu verður
lengi minnst og það er aðeins hægt að hugsa um hana með bros á vör, glaðværð
hennar og ákafi í öllu sem hún tók sér fyrir hendur stendur uppúr.

Við sendum Elínu og Ingimundi samúðarkveðjur

 

 

 

Vetrarnámskeið Björgunarhundasveitar Íslands verður haldið á næstu dögum. Námskeiðið verður
haldið á Gufuskálum og eru alls 24 teymi ásamt nokkrum aðstoðarmönnum skráð til
leiks. Æft verður á Snæfellsjökli dagana 17. -21. Mars. Þar munu menn og hundar
þurfa að þreyta próf og vonandi fáum við inn fleiri hunda á útkallslista ef allt gengur að óskum hjá teymunum. Hugrún sérlegur kokkur BHSÍ ætlar að sjá um
að elda ofan í mannskapinn og er matseðillinn ekki af verri endanum.  Fyrirlestrar  og upprifjun úr skyndihjálp ásamt fleiru verða
á kvöldin og einnig verður haldin æsispennandi spurningakeppni, Geltu betur!

Við óskum hundum
og fólki góðs gengis á námskeiðinu og  góða skemmtun !

Mynd: Nokkrir meðlimir BHSÍ í syngjandi sveiflu á vetrarnámskeiði 2009 :)

 

 

Björgunarhundasveitin var á fimmta tímanum í nótt kölluð út til að leita að manni á Höfuðborgarsvæðinu. Útkallið var afturkallað stuttu síðar.

Félagar í Björgunarhundasveitinni æfa nú af fullum krafti snjóflóðaleit. En töluvert er síðan félagar hafa fengið svo snjóþungan vetur til æfinga. Æft er hverja helgi og oftast báða dagana og fram á kvöld. Æfingastjórn vill minna á að koma með á æfingar : heita kakóið, nesti, ýli, snjóflóðastangir, góða skapið og hundinn ! :) Læt fylgja eina mynd af þeim félögum Snorra og Kol á æfingu nú um helgina með Eyþóri sem stendur þarna hjá og fylgist með að allt fari nú vel fram.

Næsta síða →

  • Styrktaraðili

  • Dagatal

    May 2012
    S M T W T F S
    « Apr    
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    2728293031  
  • Myndir

  • Tenglar

  • Samstarfssveitir BHSÍ

  • Veðrið