
Feb
7
Um klukkan 20 í kvöld barst beiðni um hunda til leitar að barni sem saknað var í Reykjanesbæ.
Barnið hafði farið að heiman fyrr um daginn og ekki skilað sér.
Leit var afturkölluð stuttu seinna er barnið fannst heilt á húfi.
Teymi : Anna/Kópur, Maurice/Stjarna, Elín/Skotta, Ingi/Frosti, Snorri/Kolur, Halldór/Skuggi, Krissi/Tása, Emil/Gríma, Nick/Skessa.
Teymi sem voru í viðbragðsstöðu : Valur/Funi, Björk/Krummi, Jóhanna/Morris.
Feb
5
Kl. 10 neðan við stóru brekku á Bláfjallavegi. Upp. 845-9686
Jan
23
Um kl. 9:30 var heildarútkall til leitar í Hvalfjarðarbotni að karlmanni sem saknað var. Hundar voru beðnir um að vera í viðbragðsstöðu. Kl. 9:55 var beðið um hunda. 5 teymi fóru, Anna og Kópur, Jóhanna og Morris, Kristinn og Tása, Nick og Skessa, Snorri og Kolur. Þyrlan fann manninn látinn um kl. 16:30.
Jan
17
Aðalfundur BHSÍ verður haldinn á vetrarnámskeiði þann 14. mars 2010. Nánari upplýsingar má sjá á spjalli sveitarinnar.
Jan
15
SARDA Lakes http://www.sardalakes.org.uk/er björgunarhundasveit í Englandi sem hefur haft mikið samstarf viðBHSÍ. Meðal annars hafa þeir sent leiðbeinendur á námskeið BHSÍ og aðstoðað okkur við þjálfun og úttektir. Í nóvember á síðasta ári voru mikil flóð á þeim slóðum sem SARDA Lakes starfar. Félagar í BHSÍ söfnuðu innan sinna raða framlagi í neyðarsjóð vegna flóðanna og með framlagi sveitarinnar voru gefin 600 pund. Frétt um gjöfina á netmiðli http://www.grough.co.uk/magazine/2010/01/05/icelandic-search-dog-teams-gift-to-cumbrian-flood-fund
Jan
9
Bláfjallavegur, hraunið austan við veginn áður en komið er í löngu brekkuna. Kl. 11.00.
Uppl. 893-5362

