
Aug
23
Björgunarhundasveit Íslands
1. Inngangur
Þessi reglugerð skilgreinir þær kröfur um þjálfun sem gerðar eru til björgunarmanna á útkallslista.
2. Almenn grunnþjálfun björgunarmanna.
Kröfurnar taka mið af námskeiðum sem standa til boða hjá Björgunarskólanum SL hverju sinni og endurskoðast reglulega.
2.1 Námskeið sem flokkast undir ‘Björgunarmann 1’
Fyrsta hjálp 1 (helgi)
Leitartækni (helgi)
Ferðamennska (dagur)
Rötun (dagur)
Fjallamennska 1 (helgi)
Fjarskipti 1 (kvöld)
Björgunarmenn í aðgerðum (kvöld)
Slöngubátar (dagur)
Snjóflóðaleit (kvöld+dagur)
2.2 Námskeið sem flokkast undir ‘Björgunarmann 2’
Fyrsta hjálp 2 (helgi)
Göngu GPS
2.3 Fullgildur félagi í annarri björgunarsveit telst uppfylla kröfur um þjálfun sem gerðar eru til björgunarmanna á útkallslista.
3. Endurmenntun
Félagar á útkallslista þurfa að halda þekkingu sinni við. Fræðslunefnd skipuleggur endurmenntunarnámskeið.
4. Þátttaka á æfingum og námskeiðum.
Félagar skulu mæta reglulega á æfingar í sumar- og vetrarleit og taka þátt í að minnsta kosti tveimur helgarnámskeiðum (2-4 dagar) yfir sumarið og vetrarnámskeiði (6 dagar) eftir því sem hægt er.
Samþykkt af fræðslunefnd BHSÍ,
19. júní 2007
Ingimundur Magnússon, Nikulás Hall og Snorri Þórisson
Aug
23
Úr reglum sem voru unnar af fræðslunefnd Björgunarhundasveitar Íslands í ágúst 1999:
Auður Björnsdóttir, Þorvaldur A. Steinsson, Þórir Sigurhansson.
Spor
1. Almennar upplýsingar.
1.2. Standist gengi C próf, getur það reynt við B próf á sama námskeiði ef hundurinn er 18 mánaða eða eldri.
1.3. Standist gengi A próf, telst það tilbúið til að sinna útköllum í sporaleit á vegum BHSÍ.
1.4. Gengi sem staðist hefur A próf er skráð á útkallslista BHSÍ í eitt ár.
1.5. Mæti A gengi ekki í endurmat að ári liðnu, fellur A gráðan sjálfkrafa úr gildi án nokkurra undantekninga.
1.6. Til að öðlast rétt til að reyna við A próf, þarf viðkomandi hundastjórnandi að vera fullgildur félagi í BHSÍ, hafa lokið námskeiði í Skyndihjálp og rötun hjá aðilum sem BHSÍ viðurkennir.
Spor A flokkur
Aldur slóðar: 3 klst.
Lengd slóðar: 1,5 km.
Hlutir í slóð: 3 + endahlutur.
Leitartími: 1 klst.
Hundurinn þarf að vera minnsta 24 mánaða.
Upphaf slóðar skal liggja frá ákveðnum upphafsstað t.d, bíl, bakpoka, tjaldi eða hlut sem staðgengill skilur eftir sig. Hundurinn á að vera fær um að lykta af viðkomandi hlut og taka upp slóðina út frá upphafsstað. Svæðið í kringum upphafspunkt skal vera traðkað af minnst fimm manneskjum svo það líkist sem allra mest raunverulegum aðstæðum. Ýmsar hindranir geta verið í slóðinni t.d, girðing, lækur eða umferðargata.
Í þeim tilfellum þar sem slóð liggur yfir á eða læk eða aðra þá hindrum sem að einhverju leyti slítur í sundur slóðina, eiga hundastjórnandi og hundur að vera færir um að taka upp slóðina þar sem hún hefst á ný. Slóðin á að vera krossuð á minnst þremur stöðum og skiptir engu máli hversu gömul kross-sporin eru. Beygjur og vinklar skulu vera í slóðinni og skal það vera ákvörðun leiðbeinanda (dómara) hversu margar þær eru og einnig hvernig þær eru settar upp. Hafa skal í huga að hvernig sem vinklar og beyjur eru settar upp á gengið að geta leyst þær. Einnig skal prófa hundinn í að lesa úr spori, í hvaða átt staðgengillinn gekk. Það er gert með því að staðgengillinn gengur ca 200 metra slóð en í miðri slóð leggur hann frá sér hlut. Hundastjórnanda er bent á hlutinn og á að geta sagt til um það, í hvora áttina staðgengillinn gekk. Hundurinn á að vera fær um að taka upp slóðina í rétta átt.
Til þess að ná A gráðu þarf hundurinn að finna minnst tvo hluti + endhlut og fá ”staðist” í öllum þáttum prófsins.
Spor B flokkur
Aldur slóðar: 1 klst.
Lengd slóðar: 1 km.
Hlutir í slóð: 4 + endahlutur.
Leitartími: 1 klst.
Hundurinn þarf að vera minnsta 18 mánaða.
Upphaf slóðar skal liggja frá ákveðnum upphafsstað t.d, bíl, bakpoka, tjaldi eða hlut sem staðgengill skilur eftir sig. Hundurinn á að vera fær um að lykta af viðkomandi hlut og taka upp slóðina út frá upphafsstað. 3 vinklar skulu vera á slóðinni. Slóðin á að vera krossuð á einum stað og skal kross-slóðin liggja þvert á aðalslóðina. Kross-slóðin skal ekki vera eldri en 30mín. Gengið á að vera fært um að rekja spor þó svo að utanaðkomandi truflun sé til staðar td, gangandi fólk, bílaumferð og jafnvel aðrir hundar.
Til þess að fá ”staðist” þarf hundurinn að finna minnst 3 hluti + endahlut. Einnig skal prófa hundinn í að gera greinmun á hvað sé fram og hvað sé aftur í sporinu. Það er gert með því að staðgengillinn gengur ca 200 metra slóð en í miðri slóð leggur hann frá sér hlut. Hundastjórnanda er bent á hlutinn og á að geta sagt til um það, í hvora áttina staðgengillinn gekk. Gengið þarf að standast fram og aftur prófið.
Spor C flokkur
Aldur slóðar: 30 mín..
Lengd slóðar: 500 metrar
Hlutir í slóð: 3 + endahlutur.
Leitartími: 30 mín.
Hundurinn þarf að vera minnsta 12 mánaða.
Upphaf slóðar skal liggja frá ákveðnum upphafsstað t.d, bíl, bakpoka, tjaldi eða hlut sem staðgengill skilur eftir sig. Hundurinn á að vera fær um að lykta af viðkomandi hlut og taka upp slóðina út frá upphafsstað. Til þess að fá “staðist” þarf hundurinn að finna minnst tvo hluti + endahlut.
Aug
23
1. Almennar upplýsingar.
Viðurkennt gengi í A flokki skráist á útkallslista BHSÍ.
Viðurkennt gengi í B flokki skráist á útkallslista BHSÍ ef viðkomandi hefur starfað með björgunarsveit sl. 1 ár og hundurinn fullra 18 mánaða.
Aðrir ljúka B sem framhaldsáfanga að A sem er hægt að taka að ári liðnu.
2. Viðurkenningar-námskeið.
2.1. Úttekt/próf í C flokki er hægt að taka á aðalnámskeiði, helgarnámskeiði eða æfingum viðurkenndum af fræðslunefnd.
2.2. Úttekt/próf í B flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði. Gengi sem stenst B flokk fer á framhald/útkallslista í eitt ár.
2.3. Úttekt/próf í A flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði. Gengi sem stenst A flokk skráist á útkallslista í 2 ár.
2.4. Viðurkennt A gengi má athuga hvenær sem er til að sjá hvort það standist kröfur.
Ef svo er ekki, sér fræðslunefnd um úttekt/próf með tveimur dómurum eins fljótt og auðið er. Standist gengið ekki þarf það að sækja næsta aðalnámskeið.
Hundurinn þarf að vera tveggja ára til viðurkenningar í fyrsta sinn í A flokk. Viðurkenningin gildir í tvö ár. Endurmat er annað hvert ár til tíu ára aldurs.
2.5. Hundastjórnandi sem hefur staðist A í einhverri grein má reyna beint við B kröfur í sömu greinum. Hundurinn sé fullra 18 mánaða.
2.6. Heimilt er að mæta á námskeið með unga hunda ef pláss og aðstæður leyfa.
3. Endurmat
3.1. Fyrsta endurmat fer fram í upphafi aðalnámskeiðs. Þeir sem standast halda áfram út vikuna, þar sem aðaláhersla er lögð á framkvæmd leitar.
3.2. Endurmat í annað sinn og síðar er leyfilegt að taka á aðalnámskeiði sem úttekt/próf í snjóflóðaleit.
3.3. Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar og stenst ekki á fyrstu úttekt/prófi tekur þátt í námskeiðinu til enda, ef innritun frá leiðbeinanda liggur fyrir í lokin, er farið í úttekt/próf.
3.4. Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar er leyfilegt að koma með annan hund.og ef innritun frá leiðbeinanda liggur fyrir í lokin, er farið í úttekt/próf.
4. Dómur
4.1.
A úttekt/próf og endurmat: Einn dómari ásamt leiðbeinanda.
B úttekt/próf: Einn dómari ásamt leiðbeinanda.
C úttekt/próf: Dæmist af leiðbeinanda.
4.2. Hver æfing og liður æfingar dæmist “staðist” eða “ekki staðist”.
4.3. Til að standast æfinguna þarf “staðist” í öllum liðum æfingar.
Snjóflóðaleit A flokkur
Stærð: 150 x 150 metrar.
Fjöldi týndra: Allt að fjórir.
Dýpt: Minnst 2 metrar.
Tími til leitar: 30 mínútur.
Kröfur til að fá viðurkenningu.
Hundurinn skal með kerfisbundinni leit, finna og gefa merki um alla týnda á svæðinu.
Gengið leiti á óþekktu svæði, minnst einu sinni á námskeiðinu.
Gengið verður að hafa staðist svæðisvinnu á námskeiðinu. Stjórnandinn skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilji viðbrögð hundsins. Stjórnandi verður að gera grein fyrir þekkingu sinni um framkvæmd leitarinnar.
Gengið á að geta leitað með öðrum leitarflokkum og/eða með öðrum hundum. Truflun á ekki að hafa afgerandi áhrif á gengið. Stjórnandi á að vera hæfur til að stjórna/skipuleggja leit á vettvangi þar sem eru fleiri hundagengi og aðrir leitarflokkar.
Við fund skal hundurinn gefa viðvarandi merki. Hvatningaráhrif til hundsins frá stjórnanda, um að gefa merki þýðir “ekki staðist”. Hundurinn verður að hafa staðist hlýðnipróf fyrir björgunarhunda. Hundar í A flokki eru 2 ár á útkallslista. Viðurkenning veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveimur árum skv. gildandi kröfum Björgunarskóla Landsbjargar og Slysavarnarfélags Íslands og starfað með björgunarsveit í 18 mánuði.
Merki við fund
Grafa viðvarandi eða
grafa og gelta viðvarandi.
Snjóflóðaleit B flokkur
Stærð: 100 x 100 metrar.
Fjöldi týndra: 2
Dýpt: Allt að 1,5 metri.
Tími til leitar: 25 mínútur.
Kröfur til að fá viðurkenningu
Hundurinn skal með kerfisbundinni leit finna og gefa merki um tvo týnda á svæðinu.
Gengið verður að hafa staðist svæðisvinnu á námskeiðinu. Hundurinn verður að standast hlýðnipróf fyrir björgunarhunda. Stjórnandi skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilji viðbrögð hundsins. Stjórnandi verður að gera grein fyrir þekkingu sinni um framkvæmd leitarinnar.
Við fund skal hundurinn gefa viðvarandi merki.
Hvatningaráhrif til hundsins frá stjórnanda um að gefa merki þýðir “ekki staðist”. Hundurinn sé fullra 18 mánaða. Viðkomandi getur tekið A flokk ári seinna. Viðurkenning til skráningar á útkallslista veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveimur árum skv. gildandi kröfum Björgunarskóla Landsbjargar og Slysavarnarfélags Íslands og starfað með björgunarsveit í 1 ár.
Aðrir ljúka B flokki sem framhaldsáfanga að A flokki sem er hægt að taka að ári liðnu.
Merki við fund
Grafa viðvarandi eða
grafa og gelta viðvarandi.
Snjóflóðaleit c flokkur
Stærð: 50 x 50 metrar.
Fjöldi týndra: 1
Dýpt: Allt að 1 metri.
Markmið
Hundurinn á að skilja að hann eigi að finna manneskju undir snjónum.
Hundurinn verður að leita svæði sem er 50 x 50 metrar og gefa merki um einn týndann á svæðinu.
Kröfur til að fá viðurkenningu
Hundurinn þarf að hafa staðist svæðisvinnu sem lögð er fyrir á námskeiðinu og taka hlýðnipróf fyrir björgunarhunda. Ef hundurinn stenst það ekki, er gefinn kostur á að endurtaka hlýðniprófið ári síðar. Hundar sem hafa staðist flokk C geta hvenær sem er tekið þátt í námskeiði í B flokki. Hundar sem hafa staðist námskeið í C flokki eru ekki viðurkenndir til snjóflóðaleitar.
Merki við fund
Grafa viðvarandi eða
grafa og gelta viðvarandi.
Aug
23
Reglur þjálfunar skiptast í þrjá flokka.
Flokkur C: Byrjendur.
Flokkur B: Framhald.
Flokkur A: Útkallshundar.
Viðurkennt gengi í A flokki skráist á útkallslista BHSÍ.
Viðurkennt gengi í B flokki skráist á vinnulista BHSÍ.
Allir flokkar taka hlýðnipróf. Hundur í A eða B flokki verður að standast hlýðnipróf.
Æfing 1: Skapgerðarpróf (staðist / ekki staðist).
Viðbrögð hundsins gagnvart ókunnugum. Hundurinn hafður í ól. Staðgengill kemur eðlilega fram, síðan óvænt hljóð og hreyfingar. Framkoma hundsins skal vera eðlileg, ekki glefsa eða vera feiminn.
Hundurinn verður að standast skapgerðarpróf til að geta haldið áfram.
Æfing 2: Hælganga (10 stig)
Hundurinn á að vera í byrjunarstöðu og laus. Hundastjórnandi láti vita þegar hann er tilbúinn að byrja. Dómari gefur leyfi til að byrja. Skipunarorð frá hundastjórnanda er aðeins leyft í byrjun æfingar. Í æfingunni á hundurinn að fylgja hundastjórnandanum með óskiptri athygli, þannig að haus sé við vinstra hné stjórnandans. Gengið er prófað í öllum snúningum og á mismunandi hraða.
Dómsreglur
Auka skipanir og merki þýða frádrátt. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.
Æfing 3: Sækja – skila (30 stig)
Hundurinn sé í byrjunarstöðu og laus. Hundastjórnanda er afhentur einn hlutur. Stjórnandi kasti hlutnum ca. 15 metra. Við merki frá dómara gefur hundastjórnandi hundinum skipun um að sækja hlutinn og skal hundurinn sækja hlutinn og skila til hundastjórnanda fljótt og vel. Þessa æfingu skal endurtaka þrisvar sinnum.
Dómsreglur
Því hraðar og öruggar sem hluturinn er sóttur/skilað, því betra. Frádráttur er fyrir að tanna hlutinn. Greinarmun verður að gera á að tanna og að laga hlutinn til í kjaftinum. Hundur sem eyðileggur hlutinn hlýtur ekki viðurkenningu í æfingunni. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.
Æfing 4: Innkall á frjálsum hundi (40 stig)
Hundurinn sé í byrjunarstöðu. Að fengnu leyfi frá dómara er hundinum “gefið frí”. Dómari segir til þegar kalla á hundinn inn. Við innkall verður fjarlægðin að vera minnst 15 metrar. Ef hundurinn fer ekki 15 metra frá stjórnanda, getur hann gengið frá hundinum eða dómari kallað hundinn til sín. Í innkalli á hundurinn að bregðast fljótt og vel við og fara beint til stjórnanda án tafar og enda æfinguna í byrjunarstöðu.
Dómsreglur
Hundur sem skilur ekki skipun eða merki um að hann sé frjáls fær frádrátt. Kalli dómarinn á hundinn verður hann að gæta þess að áhrifin séu ekki það sterk að það hindri hundinn í að gegna innkalli eiganda fyrr en hann er búinn að athuga þann sem kallar. Í slíku tilfelli á merki um innkall að koma þegar hundurinn hefur rannsakað málið. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.
Æfing 5: Liggja saman (30 stig)
Tími 10 mín. Hundastjórnandi í hvarfi.
Að beiðni dómara raða gengin sér upp í beina línu með u.þ.b. tveggja metra millibili. Krafan er að minnst þrír hundar taki þátt í æfingunni. Að beiðni dómara eru hundarnir látnir leggjast. Þegar dómarinn lætur vita, ganga hundastjórnendurnir í beinni línu burt og í hvarf. Þegar tíminn er liðinn ganga hundastjórnendur í beinni línu aftur fyrir hundana og standa þremur skrefum fyrir aftan þá. Með leyfi dómara ganga stjórnendur til hundanna og bíða eftir skipun frá dómara um að hundurinn megi setjast upp, þá er æfingunni lokið.
Dómsreglur
Hundurinn verður að liggja í minnst 5 mín. til að standast. Hreyfi hundurinn sig eftir 5 mín. getur hann staðist ef hann er kyrr á staðnum. Leyfilegt er að skríða lengd sína. Það og annar órói þýða frádrátt. Fleiri frávik í viðbót þýða fall.
Gengi þarf lágmark 80 stig til að standast hlýðnipróf.
2. Almennar reglur
2.1. Almennar reglur sem gilda fyrir allar æfingar.
2.1.1. Ef hundi er refsað fyrir, á meðan eða eftir æfingu varðar það brottvísun frá prófi.
Ástæða brottvísunar skráist á eyðublað hjá dómara. Hundurinn skal vera undir stjórn að og frá æfingasvæði. (í taumi).
2.2. Varðandi hlýðnipróf.
2.2.1. Hundur á að byrja hverja æfingu sitjandi við vinstra hné eigandans nema annað sé tekið fram við upphaf æfingar.
Leyfilegt er að hafa hundinn við hægra hné óski hundastjórnandi þess.
2.2.2. Í æfingunni sækja/skila leyfist að hundurinn skili sitjandi eða standandi, fyrir framan eða við hlið hundastjórnanda.
Hundastjórnandi segir frá þessu áður en æfing hefst.
2.2.3. Standist gengið hlýðnipróf gildir það fram að endurnýjun.
2.2.4. Endurnýja þarf hlýðnipróf við hverja úttekt.
3. Innritun – úttekt – próf.
3.1. Gengið verður að standast B flokk áður en það innritast í A flokk.
3.2. Gengi sem leiðbeinandi innritar í úttekt/próf verður að hafa verið á aðalnámskeiði með hundinn.
3.3. Viðurkenning veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveim árum samkvæmt gildandi kröfum.
3.4. Krafa er um að hundamaðurinn sé í góðri líkamlegri þjálfun svo viðurkenning sé veitt.
3.5. Leiðbeinandi (sumar/vetur) getur innritað eigin hund í próf.

