Sunnudaginn 14. nóvember var haldin
sameiginleg útkallsæfing Björgunarhundasveitar
Íslands (BHSÍ) og Leitarhunda Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Þetta var önnur sameiginleg æfing
sveitanna á árinu og í þetta skipti var
það hann Helgi Kjartansson frá Leitarhundum sem setti
æfinguna upp. Æfingin var haldin í Flókadal
og var það Jóhann Pjetur Jónsson frá
BHSÍ sem útvegaði svæðið og figuranta,
sem voru krakkar frá Hvítárbakka, og
þökkum við þeim fyrir að liggja úti
klukkutímum saman í roki og að hluta til
snjókomu.

Þáttakendur æfingarinnar voru:
Elín Bergsdóttir með Skottu (BHSÍ)
Ingimundur Magnússon með Frosta (BHSÍ)
Susanne E. Götzinger með Sám (BHSÍ)
Kristín Sigmarsdóttir með Kút (Leitarhundar)
Ívar Björnsson með Tátu (Leitarhundar)
Haukur Ö. Sigurjónsson með Rökkvu (Leitarhundar)

Leitarsvæðinu var skipt upp milli manna og átti svo
hvert teymi að leita sitt svæði. Samvinnan gekk mjög
vel og fundust allir fígurantar nema einn en hann lá
á stað þar sem ekkert teymi leitaði á -
svæðið var það stórt að
það tókst ekki að klára það til
fulls á þessum tæplega 3 tímum sem teymin
fengu til að leita.
Leitarsvæðið var mjög krefjandi og skemmtilegt enda
allskonar klettar, gil, klettasyllur og jafnvel smá
skógur. En svæðið var hryggur milli Reykholtsdals
og Flókadals. Veðrið var eins og það á
að vera á svona æfingu, sterkur vindur og stundum
snjókoma. Undir svona kringumstæðum geta hundar
tekið lykt af týndu fólki í allt að 400 -
500m fjarlægð og spara þar með leitarmanninum
heilmörg spor.

Ákveðið var að halda fljótlega aðra svona
sameiginlega æfingu fyrir Leitarhunda Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og Björgunarhundasveit Íslands.