Björgunarhundasveit Íslands

1. Inngangur

Þessar reglur skilgreina þær kröfur sem Björgunarhundasveit Íslands gerir til hunda og björgunarmanna sem teymi á útkallslista í víðavangsleit að týndu fólki.

2. Úttektir og endurmat

Fyrsti áfangi teymis er úttekt í C flokki og er hún skilyrði til þess að teymi geti hafið þjálfun til B úttektar. Teymi sem stenst úttekt í B flokki skráist á útkallslista í eitt ár og reynir að því loknu við úttekt í A flokki. Teymi sem stenst úttekt í A flokki þarf að fara í endurmat ár hvert.

Listi yfir teymi og niðurstöður prófa skulu geymdar hjá fræðslunefnd. Tilkynna skal útkallslistann í viðavangsleit hverju sinni til Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

3. Almennar kröfur

Björgunarmaður skal hafa staðist kröfur skv. reglugerð BHSÍ um þjálfun björgunarmanna.

Hundur skal hafa staðist hlýðnipróf samkvæmt gildandi reglum. Hundur skal vera undir stjórn björgunarmanns að og frá leitarsvæði. Ef hundur er beittur ofbeldi að mati dómara varðar það brottvísun úr úttekt.

Ef talinn er vafi á að hundurinn hafi heilsu til björgunarstarfa skal framvísa vottorði frá dýralækni.

Fræðslunefnd innritar teymi í úttekt þegar hún telur að það hafi fengið nægilega þjálfun til að standast úttekt. Teymi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar er leyfilegt að vera með annan hund á námskeiði.

4. Dómarar

Úttekt í A og B flokki dæmist af tveimur dómurum. Úttekt í C flokki dæmist af einum dómara.

Dómari þarf að hafa verið með hund í A flokki í víðavangsleit en ekki mega hafa liðið meira en þrjú ár frá því að teymið var á útkallslista. Fræðslunefnd metur hæfni dómara frá öðrum sveitum.

Dómarar velja leitarsvæði og ákveða leitartíma í úttektum. Svæði skulu vera hæfilega stór miðað við landsslag, veðurskilyrði og leitartíma. Dómarar ákveða fjölda týndra og staðsetningu þeirra á svæði.

Dómarar skrá niðurstöður úr útektum á þar til gerð matsblöð og koma sér saman um niðurstöðu. Geti dómarar ekki komist að sameiginlegri niðurstöðu sendist álit hvors fyrir sig til fræslunefndar sem ákveður endanlega niðurstöðu. Sitji viðkomandi dómari eða björgunarmaður einnig í fræðslunefnd þarf stjórn sveitar að skipa varamann til að fjalla um málið.

5. Úttekt í C flokki

Úttektir í C flokki fara fram á námskeiðum eða æfingum samþykktum af fræðsluráði. Lágmarksaldur hunds skal vera 9-12 mánuðir.

Viðmiðunarsvæði í úttekt í C flokki ákveðist af dómara. Fjöldi týnda er einn eða tveir og leitartími um 5-15 mínútur. Megin áhersla í C flokki er að hundurinn gefi skýrt og öruggt merki án nokkurar hvatningar frá björgunarmanni eða þeim týnda. Heimilt er að verðlauna hundinn fyrir rétta hegðun.

Þegar hundurinn finnur týnda manneskju skal hann sækja björgunarmanninn með því að hlaupa til hans og gefa merki. Hundurinn má gefa merki með því að gelta eða koma með ‘bringsel’ í kjafti. Þá skal hundurinn vísa björgunarmanninum beint á þann týnda.

Ein leit nægir í úttekti í C flokki

6. Úttekt í B flokki

Til viðmiðunar þarf teymi að hafa öðlast reynslu í leitaræfingum í um eitt ár eftir að hafa lokið úttekt í C flokki.

Úttekt fer fram á námskeiðum, tekur tvo daga og skal hvert teymi að jafnaði leita tvö svæði og standast kröfur í bæði skiptin. Ef teymi stenst ekki kröfur í fyrstu leit geta dómarar ákveðið að fella niður seinni leit. Dómurum er einnig heimilt að setja upp þriðju leit.

Dómarar skýra út leitarsvæði og skal björgunarmaður gera grein fyrir hvernig hann hyggst leita og þarf að geta rökstutt áætlun sína og breytingar sem kunna að verða út frá áætluninni.

Viðmiðunarsvæði í úttekt í B flokki er allt að 2/3 ferkílómetri með allt að þremur týndum. Leitartími er u.þ.b. 2 klst.

Teymið skal með kerfisbundnum hætti leita allt svæðið að teknu tilliti til landslags og veðurskilyrða. Teymið skal finna alla þá týndu á svæðinu. Björgunarmaðurinn tilkynnir fund til dómara með talstöð.

Teymið skal vera fært um að vinna jafnt að nóttu sem degi og nota skal ljós og viðeigandi rötunartæki ef þurfa þykir.

Teymið skal vera fært um að vinna á svæði þar sem aðrir leitarflokkar eru að störfum með hverskonar tækjum og útbúnaði, eða önnur teymi að leita nálæg svæði, án þess að það trufli einbeitingu.

Björgunarmaður skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilja viðbrögð hans.

7. Úttekt í A flokki

Til þess að innritast í úttekt í A flokki skal teymi vera með gilda úttekt í B flokki og hafa öðlast víðtæka reynslu í leitaræfingum í um tvö ár.

Kröfur í úttekt í A flokki eru þær sömu og í B flokki að viðbættum eftirfarandi atriðum.

Viðmiðunarsvæði í úttekt í A flokki er allt að einn ferkílómetri með allt að fjórum týndum. Leitartími er u.þ.b. 3 klst.

Björgunarmaður í A flokki skal vera hæfur til að skipuleggja og stjórna leit á vettvangi með fleiri hundateymum og öðrum leitarflokkum.

Teymi sem ekki mætir eða fellur í úttekt í A flokki er tekið af útkallslista og þarf að reyna aftur við úttekt í B flokki.

8. Endurmat

Kröfur í endurmati eru þær sömu og í úttekt til A flokks en dómarar geta ákveðið að láta eina leit nægja. Til þess að innritast í endurmat skal teymi vera með gilda úttekt í A flokki. Teymi sem mætir ekki eða fellur í endurmati er tekið af útkallslista og þarf að reyna næst við úttekt í A flokki. Dómurum er þó heimilt að leggja til að teymið sé áfram á útkallslista en fari aftur í endurmat við fyrsta tækifæri.

Samþykkt af fræðslunefnd BHSÍ,
19. júní 2007

Ingimundur Magnússon, Nikulás Hall og Snorri Þórisson


(Myndin er tekin af vef Landsbjargar)

Ferðamaðurinn sem saknað hefur verið á Hornströndum kom fram í Rekavík
um kl. 14.40. Hann er heill á húfi og verður fluttur með vélbátnum Sædisí til byggða.
Allir björgunarmenn sem voru á leið á vettvang hafa verið afturkallaðir.

Um síðustu helgi var 3. sumarnámskeið sveitarinnar haldið á Birkimel við Barðaströnd. Mæting var góð eða um 18 teymi og var notast við 3 svæði. Leiðbeinendur voru: Ingimundur, Þórir, Maurice og svo fengum við til okkar þau Chris Francis og Christyne Judge frá Sarda Lakes Bretlandi til aðstoðar og fræðslu. Að þessu sinni voru 5 teymi sem tóku próf og stóðust þau öll með prýði. Teymin voru :
Auður og Skolli, A-endurmat.
Elín og Skotta, A-endurmat.
Hermann og Monsa, A-endurmat.
Ingimundur og Frosti, A-endurmat.
Þórir og Púki, B-próf.
Á laugardagskvöldinu voru bretarnir með fyrirlestur um björgun og björgunarsveitir í
Lake District og að sjálfsögðu var einnig fyrirlestur um björgunarhunda. Eftir fyrirlestrana var svo farið í aðra sálma og bar þá hæst hin árlega hraðahlaupskeppni björgunarhunda.
Hún virkar þannig að haldið er í hundinn á meðan eigandinn fer frá honum rúma hundrað
metra, þá kallar eigandinn í hundinn og tekinn er tími á því hve fljótur hundurinn er að hlaupa vegalengdina. Í fyrsta sæti að þessu sinni var Gutti á tímanum 11.87 sek. Sigurvegari síðustu tvö ár, hann Jökull kom sterkur inn þrátt fyrir að vera slasaður á fæti og varð í öðru sæti á tímanum 12.00 sek. Í þriðja sæti varð svo nýliðinn, hann Kolur á tímanum 12.04 sek. Hraðametið hans Jökuls 9.78 sek. var því ekki slegið þetta árið og verður spennandi að sjá hvað gerist í næstu keppni að ári. Næsta námskeið verður haldið í byrjun október og verður staðsetning ákveðin þegar nær dregur. 

Teymi frá sveitinni eru nú lögð af stað með þyrlu Landhelgisgæslunnar áleiðis á Hornstrandir að leita að 23 ára gömlum þýskum ferðamanni sem varð viðskila við samferðamenn sína. Mikil þoka var á svæðinu þegar maðurinn týndist. Óttast er um afdrif hans þar sem ferðaveður er slæmt, mikil rigning og kalt. 

Leit að spænskum ferðamanni sem leitað hefur verið að síðan í gærkvöldi hefur verið hætt en vitað er að hann kom sér til byggða og er heill á húfi. Mannsins var leitað á svæðinu milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. Athuganir sem fóru fram samfara leitinni gáfu til kynna að hann hefði breytt ferðaáætlun sinni og komið sér sjálfur í Kirkjubæjarklaustur. Maðurinn er um fimmtugt og var einn á ferð, en hundrað björgunarsveitarmenn og leitarhundar höfðu leitað hans síðan í gærkvöldi. (Frétt tekin af mbl.is)

Powered by Hexia

Víðtæk leit stendur nú yfir af spænskum ferðamanni sem í gærmorgun hélt frá skálanum í Hrafntinnuskeri áleiðis að Álftavatni þar sem hann átti pantaða gistingu í nótt. Þangað hafði hann ekki skilað sér. Leitarmenn frá Hellu og Hvolsvelli hafa leitað á svæðinu í nótt ásamt hundateymum og voru björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu einnig kallaðir út. Leitarsvæði er nokkuð stórt og að hluta seinfarið. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvernig maðurinn er útbúin og hann virðist vera einn á ferð. Um 100 björgunarmenn eru nú að störfum ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hundateymin voru kölluð út klukkan 22.40 í gærkveldi og eru 3 teymi frá BHSÍ á staðnum að leita ásamt teymum frá Leitarhundum.