
Jan
19
Um síðustu helgi skelltu félagar BHSÍ sér á Mýrdalsjökul til að æfa snjóflóðaleit. Gist var í Drangshlíð og æft bæði laugardag og sunnudag upp undir jöklinum. Veður var frábært báða dagana og gengu æfingar mjög vel. Sveitin getur státað sig af blómlegu nýliðastarfi þessa stundina og eru gæðin mikil á mönnum og hundum. Aðal vetrarnámskeið sveitarinnar verður svo haldið í mars og stendur það yfir í 5 daga.
Jan
19
5 teymi: Hemmi/Monsa, Maurice/Stjarna, Elín/Skotta, Susanne/Sámur, Ingi/Frosti.
Um klukkan 14.30 var kallað út til leitar að manni í Kópavogi. Teymi gerðu sig klár og héldu á staðinn en leit var svo afturkölluð um klukkan 16.00. Maður fundinn.
Jan
5
Rétt eftir miðnætti 2.janúar var beðið um hunda til leitar að manni í Búðardal. Til leitar héldu
3 teymi: Maurice/Stjarna, Elín/Skotta, Ingimundur/Frosti. Eitt teymi var í viðbragðsstöðu:
Hemmi/Monsa. Leit var afturkölluð um klukkan 01.45. Maðurinn fundinn.

