Sá sorglegi atburður átti sér stað sunnudaginn 19.mars á vetrarnámskeiði sveitarinnar
að útkallshundurinn Skolli veiktist alvarlega og lést í kjölfarið á því. Um miðjan dag kom í ljós að Skolli var ekki heill heilsu og var þá farið með hann til dýralæknis á Hvolsvelli.
Þar var hann skoðaður og fékk að því loknu að fara aftur í Drangshlíð. Fljótlega kom þó í ljós að Skolli þyrfti frekari aðhlynningu og var þá ákveðið að keyra með hann til Garðabæjar í
nánari skoðun. Þar var ákveðið að aðgerðar væri þörf en þrátt fyrir að allt væri gert, var ekki hægt að bjarga honum og lést hann skömmu eftir miðnætti aðfaranótt mánudagsins 20.mars.
Skolli var í eigu Auðar Yngvadóttur frá Ísafirði og saman voru þau frábært teymi.
Skolli og Auður náðu A gráðu í víðavangsleit árið 2002 og í snjóflóðaleit árið 2004.
Saman fóru þau í fjölmörg útköll með góðum árangri og skiluðu sínu með miklum sóma.
Hundurinn Skolli var skemmtilegur karakter og var hann þekktur innan sveitarinnar
sem Selurinn. Þá nafnbót fékk hann vegna þess að hann átti það til að góla eins og selur
frekar en að gelta eins og hundur. Hann var orkubolti eins og sannur Border Collie og
ekki vantaði kraftinn og ákveðnina í þennan frábæra vinnuhund. Það er stórt skarð höggvið í
raðir sveitarinnar og erum við öll fátækari eftir dauða Skolla okkar. Við félagar í BHSÍ sendum
Auði okkar og hennar fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur.
Minningin um góðan hund lifir.
Fyrir hönd BHSÍ Ragnheiður Hafsteinsdóttir og Elín Bergsdóttir

Vetrarnámskeið BHSÍ var haldið á Mýrdalsjökli daganna 17.-22.mars. Gist var í Drangshlíð og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir frábæra aðstöðu. 21 teymi voru skráð á námskeið og var þeim skipt á 3 svæði. Leiðbeinendur voru: Jan Kristiansen frá Norske Redningshunder,
Ingimundur Magnússon og Þórir Sigurhansson. Ásamt þeim var einn leiðbeinandanemi á hverju svæði: Halldór Halldórsson, Auður Yngvadóttir og Hlynur Snæbjörnsson. Einnig voru 2 gestir frá SARDA Lakes Bretlandi, þau Chris Francis og Chrystine Judge.
Veðrið var mjög gott alla daga og gengu æfingar og próf mjög vel.
Námskeiðið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig þar sem sveitin missti einn af sínum bestu
útkallshundum og einhverjir fengu að glíma við flensupúkann. En þrátt fyrir skin og skúra
náðist góður árangur og náðu eftirfarandi sínum takmörkum í þetta sinn :

Halldór Halldórsson útskrifaðist sem leiðbeinandi.

Hermann og Monsa A-endurmat.
Ingimundur og Frosti A-endumat.
Maurice og Stjarna A-endurmat.
Susanne og Sámur A-endurmat.
Þórir og Púki A-endurmat.
Ragga og Jökull A-próf.
Bríet og Skutla B-próf.
Gunnar og Krummi B-próf.
Björk og Krummi C-próf.
Björn og Stormur C-próf.
Nikulás og Skessa C-próf.
Snorri og Kolur C-próf.

Einnig fengu þau Rúnar og Guðbjörg Kötubörn afhent viðurkenningarskjöl fyrir að ná A gráðu í fígúrantaflokki.

Sveitin þakkar öllum sem komu að námskeiðinu á einn eða annan hátt,
kærlega fyrir alla aðstoð.


Elín Bergsdóttir formaður BHSÍ og Sigtryggur Hilmarsson frá Vistor hf.

Í gær var félagsmönnum BHSÍ boðið i húsakynni Vistor hf. í Garðabæ og var tilefnið undirritun samstarfssamnings milli BHSÍ og Vistor hf.
Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni hefur Vistor hf. verið innflutnings- og
dreifingaraðili Hill´s fóðurs um áratugaskeið og eru allir hundar sveitarinnar nú komnir á þetta gæðafóður. Bernharð Laxdal sölu- og markaðsstjóri Dýraheilbrigðis hjá Vistor var með
fyrirlestur um Hill´s fóðrið og öllu sem því viðkemur ásamt því að fræða félaga BHSÍ um Vistor. Boðið var upp á góðar veitingar og þökkum við þeim hjá Vistor hf. kærlega fyrir góða kvöldstund og vonum að samstarfið verði gott og farsælt.
Hægt er að sjá myndir af undirrituninni á myndasíðu sveitarinnar.

Miðvikudagskvöldið 15.mars mun Bernharð Laxdal hjá Vistor hf. halda fyrirlestur fyrir meðlimi sveitarinnar um Hill´s dýrafóður. BHSÍ og Vistor hf. gerðu nýverið með sér samstarfssamning og inniheldur hann meðal annars það, að hundar sveitarinnar eru nú komnir á Hill´s fóður en Vistor hf. hefur verið innflutnings- og dreifingaraðili fóðursins um áratugaskeið. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsi Vistor í Garðabæ og hefst hann klukkan 19.30. Einnig verður skrifað undir samning milli BHSÍ og Vistor .