miðvikudagur, júlí 19
 
miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sumarfrí sumarfrí sumarfrí frí frí….. já Skutla fékk að fara í sumarfrí en ég skal segja ykkur að hún var ekki búin að vera korter úti í móa á fyrsta áfangastað Fjarðarhorni í Kollafirði þegar ég mátti rjúka af stað með hana töluvert rifna og tætta til næsta dýralæknis. Það vildi okkur til að við hittum Margréti Kristínu dýralækni í Borgarnesi og sat hún í næstum þrjá tíma og bróderaði Skutlu saman. Margrét saumaði rúmlega 60 spor í Skutlu undir hægri framfótinn. Skutla var mjög aum og lítil meðan á öllu þessu stóð…. .eftir svæfinguna var hún bara alveg eins og smábarn. Dagurinn eftir byrjaði því á að gefa Skutlu verkjalyf því ég hélt hún yrði bara svipuð og daginn áður…. en nei…. Skutla var bara orðin sama Skutla og áður og nú þarf eiginlega bara að passa að hún sé ekki stökkvandi upp á allt og út um allt og út í næsta vatn.

Allt þetta kom fyrir Skutlu vegna þess að hún sökk yfir gaddavírsgirðingu og flæktist þar í…… rifnaði eins og hún hefði bara verið fláð ….. og rúmlega 60 spor í lítinn hund eru staðreynd….. sumir spyrja mig nú reyndar hvort tíkin sé hreinlega nógu löng fyrir öll þessi saumspor:) En hún er hress og kát og gengur nú bara um í lopapeysu svo hún komist ekki í sárið…..!!

Kveðja úr sumarfríinu…..

Bríet og kó.

þriðjudagur, júlí 18, 2006

Æfing í gær á Ísafirði

Við fórum í gærkvöldi upp á Seljalandsdal og héldum þar æfingu frá kl.20-22. Þeir sem mættu voru Auður og Skíma, Skúli og Patton, Hörður og Skvísa og Jóna og tinni. Eðalfígúrantinn Sigrún hennar Auðar kom til að fígúrantast! Aðstæður voru ágætar fyrir utan svoldið vindleysi en við létum það nú ekki trufla okkur.

Skíma stóð sig vel. Fyrir hana fór einn falskur og einn fígúrant út í móa og þegar hún finnur þá geltir hún og þetta var rosa flott hjá henni.

Patton stóð sig auðvitað vel líka og var gert það sama fyrir hann. En það þarf að segja honum að gelta þegar hann hefur fundið.

Skvísa var flott líka og það var gert það sama fyrir hana líka. En því miður að þá gengur það treglega að fá hana til að gelta eftir skipun en þetta kemur allt saman með smá þolinmæði.

Tinni er kominn lengra en hvolparnir. Fígúrantinn felur sig á góðum stað. Tinni leitar og þegar hann finnur þá tekur hann bringselið upp í sig og hleypur til Jónu og hún tekur bringselið af honum og Tinni hleypur síðan ásamt Jónu strax aftur til fígúrantsins. Þetta gekk bara vel í gærkvöldi.

Það gengur eitthvað treglega að setja myndir inn á bloggið en það kemst vonandi fljótlega í lag.

Við hér á Ísafirði reynum að hittast tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum um átta leytið. Það er misjafnt hvar við æfum, við reynum að vera ekki alltaf á sama stað en höfum verið mikið á Seljalandsdal og uppi á Breiðadalsheiði.

Við munum reyna að skrifa reglulega fréttir um hvernig okkur gengur og þegar eitthvað skemmtilegt gerist á æfingunum hjá okkur.

Bestu kveðjur
fyrir hönd BHSÍ Ísafirði
Jóna Dagbjört

 fimmtudagur, júlí 13, 2006

Æfðum í gærkveldi uppi við Skíðaskálavatn. Þegar við byrjuðum æfinguna sá maður ekki handa sinna skil vegna þoku en þegar líða tók á var orðið heiðskýrt og virkilega fallegt veður.

Ég byrjaði æfinguna á undan hinum og tók svo tæplega klukkustundar göngu uppi á fjalli þar sem ég vissi að engin væri, þá var Öddi búinn að setja út tvo fígúranta og lét mig vita að þeir væru komnir í svæði nokkuð fyrir neðan mig svo ég leitaði niður dalinn og fann fyrsta fígúrantinn þegar við Skutla vorum búnar að vera góðan klukkutíma að leita. Hún markeraði vel og vísaði mér svo á hinn týnda. Þegar þangað kom fékk hún náttúrulega skemmtilegan boltaleik hjá fígúrantinum honum Magna Eftir að boltaleiknum lauk lögðum við af stað til að finna næsta fígúrant, eftir ca. tveggja mínútna göngu rann Skutla á lyktina af hinum fígúrantinum, en þá lenti hún í smá vandræðum því hann var hinum megin við Skíðaskálavatnið, hún gerði það eina rökrétta í byrjun og hljóp eftir lyktinni sem lá þvert yfir vatnið og beinustu leið út í vatnið, þegar hún var búin að synda góðan tíma ákvað hún að þetta væri ekki rétta leiðin, snéri við og kom upp úr vatninu nánast þar sem hún fór ofan í og þaut af stað hringinn í kringum vatnið og beint til fígúrantsins…. og hver segir að hundar hugsi ekki :) Skilaði allri leitinni vel og það var sérstaklega gaman að fylgjast með henni vinna úr þessari lykt sem lá þvert yfir vatnið. Þetta er eitt af þessum skiptum þar sem maður skilur ekki hvers vegna myndavélin var í bílnum en ekki bakpokanum.

Goði og Ingþór mættu líka galvaskir á svæðið. Goði er fullur af fjöri og virkilega vel sáttur við húsbónda sinn hann Ingþór og gengur vel hjá þeim
félögum. Við settum út fígúrant fyrir Goða og sendum svo falskan út og
Goði rauk beint í áttina sem sá falski var sendur í. Goði fór hratt og vel yfir og vann nokkuð lengi áður en hann fann svo fígúrantinn. Goði geltir orðið hjá fígúrantinum en einstaka sinnum þarf að minna hann á ,
hann fer svo og geltir hjá Ingþóri og eftir það beint í vísun. Flottir saman Ingþór og Goði.

Smá orða skýringar:
Fígúrant……… er hinn týndi
Falskur………. er þegar fígúrant er látinn fela sig og hundurinn hefur ekki fengið að fylgjast með hvert hann fór, síðan er annar fígúrant látinn hlaupa aðeins út meðan hundurinn sér til, hundurinn er svo settur bakvið t.d. bíl meðan seinni fígúrantinn kemur tilbaka. Hundinum er síðan stillt upp á saman stað og hann sá seinni fígúrantinn hlaupa í burtu frá og leggur af stað í leitina mjög áhugasamur en þarf svo að hafa aðeins fyrir leitinni til að finna upphaflega fígúrantinn. 

Mér finnst rigningin góð….. og haglélið líka.
mánudagur, júlí 10, 2006

Patreksfirðingar og Ísfirðingar æfðu saman í ….. já slyddu…. regni…. roki…. og næstum hagléli og varla nema 2-3 stiga hita uppi í Seljalandsdal á laugadaginn!! Eftir að Auður “náfrænka” Pollýönnu hafði haldið fyrirlestur um að þetta væri alls ekki vont veður og við hin ættum bara að hætta að væla var farið að æfa…. því auðvitað vissum við að Auður veit sínu viti( það var nú samt betra veður í janúar og febrúar). Eftir að við byrjuðum að æfa þá virtist veðrið lagast heilmikið….. allavega hlýnaði okkur vel, reyndar var svo mikil og blaut rigning á svæðinu að að skipti varla máli hvort fígúrantarnir lögðust á á grasið eða bara beint í smá læki sem runnu hér og þar um svæðið. Á tímabili held ég að Hörður hafi óskað þess að geta hrist sig eins og hundur því hann var í orðsins fyllstu merkingu hundvotur.

Litlu villidýrin frá Kaðalstöðum voru alveg frábær. Mikill áhugi á leitinni og einbeitingin alveg ótrúleg. Þessir hundar eiga eftir að verða bara flottir þegar fram í sækir. Skíma Auðar, Skvísa Harðar og Patton Skúla eru tæplega fjögurra mánaða og strax farin að sýna réttu taktana. Vissulega björgunarhundar framtíðarinnar.Tinni og Skutla stóðu sig líka mjög vel. Tinni markeraði vel og vísunin var góð ….. þegar hann fékk svo leikinn á dró hann Smára næstum út um allt svæðið og á tímabili mátti ekki á milli sjá …. .hvor var að leika við hvern!! Skutla skilaði sínu vel og ákvað svo að hlaupa 1000 sinnum upp og niður með lítilli mjög vatnsmikilli á. Hún var einstaklega einbeitt við þessa iðju og er væntanlega þarna enn að hlaupa upp og niður. Spurning um að biðja Auði að sækja hana svona seinni partinn á morgun eða allavega fara og fóðra hana….. neeeee hún hlýtur að fá afganga úr brúðkaupinu sem var þarna rétt hjá í Skíðaskála. Brúðkaupsgestirnir voru reyndar kátir með okkur …. allavega fengum við fínt áhorf og töldu Smári og Auður að við værum bara frítt skemmtiatriði fyrir liðið….. ég held reyndar að gestirnir hafi vorkennt okkur að vera úti í rigningarslabbhaglélinu….. eða allavega verið fegnir að vera ekki úti sjálfir.

En að öllu gamni slepptu…. þá var þetta mjög góð æfing í góðra vina hóp. Það voru kátir félagar þ.e. Auður, Sigrún, Skúli, Hörður, Jóna, Magni, Smári, Bríet og allir ferfætlingarnir þeirra sem héldu heima á leið um fjögurleytið á laugardaginn!!

Takk fyrir daginn

kveðja Bríet og kó

P.s. svona bara til að segja ykkur það þá hrindi svo Auður í mig á sunnudeginum og þá var rúmlega 15 stiga hiti hjá henni !!

mánudagur, júlí 10
 
mánudagur, júlí 10, 2006

Næsta æfing á Patreksfirði verður haldin miðvikudaginn 12. júlí kl. 20:00 og mæting upp við Skíðaskálavatn ofarlega í Mikladal.
 
Aðstoð óskast
Ef einhverjir hafa hug á að koma og hjálpa til er það velþegið. Hjálpin myndi felast í því að liggja úti og fela sig. Mjög nauðsynlegt er fyrir hundana okkar að fá tilbreytingu í leikinn og leita ekki alltaf að sömu einstaklingunum.
Æfingin tekur sirka eina og hálfa klukkustund.
Áhugsamir hafi samband við Bríeti í síma 867-7565.
 
Var að setja inn nýjar myndir. Þær eru frá vetrarnámskeiðinu á Mýrdalsjökli, síðasta
sumarnámskeiði á Gufuskálum, æfingu 2.júlí sunnanlands og svo voru að bætast við myndir frá því á Langjökli í fyrra. Annað fréttnæmt er að önnur útkallsæfing sumarsins fer fram næsta
sunnudag og er það Snorri sem sér um skipulagninguna að þessu sinni.

Kveðja Ragga

Næsta síða →