
Jan
25
Um síðustu helgi skelltu 25 teymi og aðstoðarfólk sér á Mýrdalsjökul til snjóflóðaæfinga.
Gist var í Drangshlíð. Þar sem hópurinn var svona stór var ákveðið að skipta fólki niður á
4 svæði og voru Ingimundur, Auður, Halldór og Maurice leiðbeinendur á svæðunum. Veðrið var frábært báða dagana og gengu æfingar mjög vel hjá öllum en hópurinn var eins breiðleitur og gerist, allt frá útkallshundum til nokkurra ára og niður í 3 mánaða hvolpa. Fullt af upprennandi björgunarhundum að hefja ferilinn. Næsta æfingahelgi er strax handan við hornið en hún
verður helgina 10.-11.febrúar og verður æft á Snæfellsjökli. Búist er við sömu þáttöku þar ef ekki meiri þar sem ekki öll teymi komust þessa helgina.
Semsagt gífurleg gróska í starfi sveitarinnar sem endranær.
Á sunnudeginum voru útkallsteymi beðin að vera í viðbragðsstöðu vegna snjóflóðs sem féll á Akureyri og var einn maður týndur. Maðurinn fannst til allrar hamingju tilltölulega fljótt og má þakka því að hann var með snjóflóðaýli á sér. Teymi voru beðin um að vera áfram í
viðbragðsstöðu ef fleiri flóð myndu falla.
Jan
5
2 teymi: Ragga/Jökull, Maurice/Stjarna. Hemmi/Monsa á standby.
Útkall barst klukkan 4.45 og var beðið um hunda til leitar við Hvaleyrarvatn. Maður um fertugt hafði farið þangað með hundana sína að kveldi 3.janúar og ekki skilað sér heim. Hafin var leit að bílnum hans þegar teymi komu á staðinn en talið var að heyrst hefði í hundum á
hæðinni gengt Hvaleyrarvatni og því var ákveðið að láta teymi ganga það svæði. Sú ganga skilaði engu og engir hundar sjáanlegir. Bíll mannsin var heldur ekki sjáanlegur. Teymi leituðu ekki meira með hundana í þetta skipti en héldu áfram að leita á bifreið þar til leit lauk.
Um hundrað manns tóku þátt í leitinni ásamt hundum og þyrlu. Maðurinn fannst svo um klukkan 10 um morgunin í heimahúsi í Hafnarfirði. Hann var heill á húfi.

