
Apr
23
6 teymi: Ingimundur/Frosti, Elín/Skotta, Hermann/Monsa, Gunnar/Krummi, Ragga/Jökull, Maurice/Stjarna.
Rétt eftir miðnætti 19.apríl barst beiðni um hunda til leitar að ungum manni sem saknað var í Reykjavík.
4 teymi hófu þegar í stað leit og leituðu fram til klukkan 6 um morgunin.
4 tímum seinna eða rúmlega 10 var svo aftur kallað út og héldu 4 teymi til leitar.
Leit var svo afturkölluð um klukkan 11.40. Maður fundinn heill á húfi.
Apr
17
Á sunnudaginn var haldin æfing á Hæl í Flókadal. Var Hælsbóndinn búinn að setja upp rústasvæði í fjárhúsunum, og var afar fróðlegt að sjá hvernig hundarnir brugðust við aðstæðum. Voru 5 faldir á hinum ýmsu stöðum, m.a. undir jötunum, beint fyrir framan allar kindurnar, undir gólffjölunum, inni hjá hrútunum, osfrv. Í hádeiginu var boðið upp á dýrindis máltið að hætti Hælsbænda. Eftir hádegi var svo farið í víðavangsleit og var hópnum þá skipt upp í tvo hópa. Þá var æft innan um hrossastóðin og var forvitnilegt að sjá hestana hlaupa á eftir hundunum er þeir voru að leita. Það truflaði hundana ekkert þó að hestarnir væru mjög áhugasamir um leitina. Eftir æfingarnar var síðan boðið í kaffi og málin rædd. Þetta var mjög svo skemmtilegur og áhugaverður dagur.
Takk kærlega fyrir Harpa og Jói.
Apr
15
Æfingar eru auglýstar á heimasíðunni sem og á spjalli sveitarinnar.
Æft er á sunnudögum og miðvikudögum.
Æfingar framundan á höfuðborgarsvæðinu fram að næsta námskeiði.
- Sunnudag 16.5 kl.10 Á bak við Litla Kaffistofuna
(N64 03.626 W21 29.296)
. - Miðvikudag 19.5 kl.20 Reykjafell – Mossfellsbær
(N64 09.616 W21 39.178)
. - Sunnudag 23.5 kl.10 Djúpavatn
(N63 55.399 W22 05.141)
. - Miðvikudag 26.5 kl.20 Við Keilisveg (keyrt út af Reykjanesbraut við Kúagerði)
(N63 58.149 W22 07.662)
. - Sunnudag 30.5 Útkallsæfing kl. 10 Mæting hjá HSG við Bæjarbraut
(N64 05.477 W21 55.165)
. - Miðvikudag 2.6 kl.20 Við Sólheimakotsveg
(N64 05.919 W21 41.169)
. - Sunnudag 6.6 kl.20 Undir Vífilsfell – námarsvæðið
(N64 02.867 W21 35.357)
. - Miðvikudag 9.6 kl.20 Hraunið bak við Kvartmílubraut
(N64 02.107 W22 03.264)
. - Sunnudag 13.6 kl.20 Við efsta skála í Bláfjöllum
(N63 58.711 W21 38.860)
. - Miðvikudag 16.6 kl.20 Helgafell – Mossfellsdalur
(N64 10.341 W21 37.763)
. - Sunnudag 20.6 kl.20 Nesjavallaleið við Tjarnhólar
(N64 06.203 W21 32.438)
Nánari upplýsingar hjá Nick í síma 845 9686.
Sjá einnig MapSource staðsetningar og Google Earth staðsetningar
Apr
3
3 teymi: Elín/Skotta, Maurice/Stjarna og Ragga/Jökull.
Um klukkan 17 barst beiðni um hunda til leitar að manni sem hafði strokið af
réttargæslufangelsinu að Sogni. Maðurinn var ekki talinn hættulegur. Þegar á svæði kom voru teymi látin bíða áttekta ef maðurinn skyldi týnast aftur en björgunarfólk og lögregla voru komnir með hann í augnsýn og var það svo um klukkan 19.20 að hann náðist heill á húfi í hlíðinni fyrir ofan Garðyrkjuskólann í Hveragerði.

