Hópurinn hennar Auðar
null
Um síðustu helgi var annað sumarnámskeið sveitarinnar á þessu ári haldið í Vaglaskógi.
Veðurblíðan lék heldur betur við námskeiðsgesti og þurftu menn og hundar að vera duglegir að skella í sig vökva á meðan æfingum stóð.
Um 25 teymi mættu til leiks ásamt fjölskyldum og aðstoðarmönnum og voru æfingar og úttektir á þremur svæðum í nágrenni Vaglaskógs.
Leiðbeinendur voru Ingimundur, Maurice og Auður.
Námskeiðið sjálft stóð í 3 daga en fólki var frjálst að bæta einum degi fyrr og byrjuðu sumir að æfa á fimmtudagsmorgninum.
Nokkur teymi þreyttu próf og urðu niðurstöður þessar:

A-endurmat
Ragga/Jökull
Maurice/Stjarna
Hermann/Monsa

B próf
Katrín/Gutti

C próf
Auður/Skíma
Skúli/Patton
Ingþór/Goði
Hörður/Skvísa

Næsta námskeið verður haldið á Gufuskálum í ágúst en næsta útkallsæfing verður haldin á Hvolsvelli 8.júlí.

Þar sem uppfærsla hefur átt sér stað á heimasíðunni datt öll sumardagsskrá út og er verið að vinna í að setja hana inn aftur.
Sunnanlands eru æfingar eins og áður á miðvikudögum og sunnudögum og eru boðaðar með sms.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um æfingar sunnanlands hjá Nick í síma 845-9686.
Varðandi æfingar á Vestfjörðum er hægt að kíkja á:
Björgunarhundar Vestfirðir
Næsta sumarnámskeið sveitarinnar verður haldið í Vaglaskógi dagana 21.-24. júní. Eins og öll sumarnámskeið sveitarinnar er þetta úttektarnámskeið og stendur það í 3 daga en fjórða deginum er bætt við ef fólk vill mæta degi fyrr til æfinga.
Nánari upplýsingar eru á spjalli sveitarinnar.
Ritari

Um klukkan 23.15 var beðið um hunda til leitar að göngumönnum en þeir höfðu ekki skilað sér í tjaldbúðir.
4 teymi gerðu sig klár til leitar: Elín/Skotta, Hermann/Monsa, Ragga/Jökull, Maurice/Stjarna.
Fyrst átti að athuga með að þyrlan flygi með teymi á svæðið en þar sem ekki var tiltæk áhöfn á þyrluna var ákveðið að keyra.
Það kom þó ekki til þess þar sem leit var afturkölluð um klukkan 23.50. Mennirnir komu sér til byggða og voru þeir heilir á húfi.

Þann flotta dag 05.06.07 eignaðist Björk okkar myndarlegan dreng sem verður án efa mættur á æfingar og námskeið hjá okkur áður en langt um líður ;)
Við félagar Bjarkar viljum óska henni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með litla kút.

Síðasta sunnudag var haldin æfing í Skammadal.
Sett voru upp 2 stór svæði fyrir útkallshunda og lengra komna og svo æfðu unghundarnir sig á einu svæði.
Einn fígúrant var týndur í hvoru svæði og gekk teymum vel að finna þá.
Eftir góða æfingu var svo haldið heim til formanns og hennar fjölskyldu í Mosfellsdal þar sem var boðið upp á grill og með því.

Þann 27.maí síðastliðinn var fyrsta útkallsæfing sumarsins haldin að Hæl í Flókadal.
8 teymi voru mætt til leiks og hefur sú breyting verið gerð að þau teymi sem eru komin með C gráðu fá líka að spreyta sig á þessum æfingum. Svæðin á útkallsæfingum eru alltaf stærri og erfiðari en allajafna á hefðbundnum æfingum og því er gott fyrir teymin að æfa sig fyrir það sem koma skal.
Eftir vel heppnaða æfingu var svo haldið heim að Hæl og snædd súpa og brauð.

Næsta síða →