Æfing við vitann Bláfjöllum
Æfingar hafa verið haldnar flesta miðvikudaga og sunnudaga á Suðvesturlandi í sumar, alls 27 æfingar auk þess sem félagar tóku þátt í 3 námskeiðum. Eitt námskeið er enn eftir en það verður í september.
Góð mæting hefur verið á æfingar og má sem dæmi nefna undanfarnar vikur en þá hafa mætt á bilinu 9 til 17 teymi og hafa þau æft undir dyggri stjórn leiðbeinenda en þeir hafa verið allt að 3 þegar mest er.
Myndin að ofan var tekin á æfingu síðasta sunnudagskvöld en þar voru mætt 17 teymi og voru 3 æfingasvæði í gangi.
Næsta námskeið verður haldið á Bitru helgina 21.-23.september og er skráning hafin á spjallinu

1 teymi : Hlynur/Moli. Teymi fyrir sunnan í viðbragðsstöðu.
Um klukkan 14.00 barst beiðni um hunda til leitar að konu sem saknað var í Kverkfjöllum. Konan, sem var erlendur ferðamaður, fór frá Sigurðarskála seinnipartinn á föstudegi og hugðist ganga í Hveragil. Konan var væntanleg í Hverfjallaskála um hádegi í á laugardegi en hafði ekki skilað sér.
Leit var afturkölluð seinnipartinn en landverðir höfðu gengið fram á konuna þar sem hún var stödd í Hveragili. Hún var heil á húfi.

Frá miðvikudeginum 22.ágúst til sunnudagsins 26.ágúst voru útkallsteymi sveitarinnar í viðbragðsstöðu á vegum Landsstjórnar vegna leitar að tveimur þjóðverjum sem ekki höfðu skilað sér heim til þýskalands eftir áætlaða gönguferð um Ísland.
Tjöld þeirra fundust neðan við Svínafellsjökul og var leitinni beint á það svæði og uppúr.
Svæðið sem leitað var á var mjög erfitt yfirferðar og aðeins fyrir reyndustu fjallamenn og var því ákveðið að hafa hundana á viðbragði ef að leita þyrfti önnur svæði.
Til þess kom þó ekki og var leit hætt án nokkurs árangurs sunnudaginn 26.ágúst.

Um síðustu helgi fór fram þriðja úttektarnámskeið sveitarinnar þetta sumar. Námskeiðið var haldið á Gufuskálum við kjöraðstæður, veðrið var gott og öll aðstaða til fyrirmyndar eins og alltaf á Gufuskálum.
Alls voru 25 teymi skráð til leiks og nutum við eins og alltaf góðrar aðstoðar duglegra fígúranta og var hópurinn því ansi stór.
Námskeiðið stóð í 3 daga og voru þau sem voru að reyna við B og A gráður látin taka 2 próf og þurftu þau að standast bæði til að ná gráðum.
Dómarar voru: Elín og Maurice, Auður og Ragga.
Leiðbeinendur og dómarar á æfingasvæðum voru: Ingimundur og Þórir.
En eftirfarandi náðu sínum takmörkum í þetta sinn :

A próf
Bríet og Skutla
Gunnar og Krummi

B próf
Anna og Kópur
Helgi og Stelpa
Hlynur og Moli
Snorri og Kolur

C próf
Kristinn og Tása
Sólveig og Salka

Næsta námskeið verður haldið á Bitru í september.
Við þökkum öllu aðstoðarfólki enn og aftur kærlega fyrir hjálpina.

5 teymi: Elín/Skotta, Ingi/Frosti, Maurice/Stjarna, Gunnar/Krummi, Hermann/Monsa.
Um klukkan 18.15 barst beiðni um hunda til leitar að konu sem saknað var á Snæfellsnesi. Teymi voru á leiðinni á staðinn þegar leit var afturkölluð klukkan 19.20. Konan fundin heil á húfi.