
Aug
31
Æfingar á suðvesturhorninu hafa farið reglulega fram á miðvikudags- og sunnudagsskvöldum í allt sumar.
Mæting hefur almennt verið góð og sem dæmi má nefna að síðastliðið miðvikudagskvöld æfðu 15 teymi undir stjórn Ingimundar og Þóris.
Frá og með 31. ágúst verður æfð víðavangsleit á sunnudagsmorgnum kl. 10 þar til hægt verður að hefja leit í snjó.
Á miðvikudagskvöldum verður lögð áhersla á umhverfisþjálfun og hlýðni.
Fræðslunefnd
Aug
31
Beðið var um hunda til leitar að ungmennum sem ekki höfðu skilað sér heim að kveldi 25.ágúst.
Útkall barst um 2.30.
Teymi : Elín/skotta, Ingi/Frosti, Hermann/Monsa, Halldór/Skuggi, Gunnar/Krummi, Anna/Kópur.
Teymi voru á leið á staðinn þegar ungmennin fundust heil á húfi.
Aug
21
Um kl. 20 þann 20. ágúst var óskað eftir hundum frá BHSÍ til leitar að ferðamanni sem villst hafði í þoku í Esjunni.
Þrjú teymi, Halldór og Skuggi, Ingibjörg og Píla og Snorri og Kolur voru keyrð á fjórhjólum upp í Esjuhlíðar og gengu síðan upp Gunnlaugsskarð.
Maðurinn sem var í símasambandi við leitarstjórn fannst um kl. 23 með aðstoð þyrlu Landhelgissgæslunnar og var hann heill á húfi.
Aug
18

Þriðja sumarnámskeið BHSÍ var haldið á Gufuskálum dagana 7. til 10. ágúst. Þátttaka var með besta móti en 33 teymi tóku þátt auk aðstoðarmanna og var heildarfjöldi á námskeiðinu uþb. 50 manns.
Leiðbeinendur voru Auður, Ingimundur og Þórir auk Chris Francis og Mike Hadwin frá Sarda Lakes í Englandi. Með þeim voru einnig Elly Whiteford leiðbeinendanemi og Trish Hadwin aðstoðarmaður.
Á öðrum degi námskeiðs kom þyrla Landhelgisgæslunnar TF LIF til þess að æfa með sveitarmeðlimum. Byrjað var á fróðlegum fyrirlestri um flugkost Landhelgisgæslunnar og hvernig björgunarmenn eiga að bera sig að í umgengni um þyrlur. Einnig var fjallað um sig úr þyrlum. Að því loknu fengu teymin tækifæri á að koma um borð í þyrluna, fyrst án þess að hún væri í gangi en síðan var þyrlan gangsett og hundarnir látnir fara um borð við mismikla hrifningu þeirra. Þá var þeim teymum sem lengra voru komin boðið að síga úr þyrlunni og gekk það mjög vel, bæði fyrir menn og hunda. BHSÍ færir Landhelgisgæslunni og áhöfn TF LÍF bestu þakkir fyrir afar gagnlega æfingu.
Fjögur teymi náðu prófi. Elín og Skotta A endurmat. Halldór og Skuggi og Ingibjörg og Píla tóku B próf og Ester og Jóka tóku C próf.
Aug
5

Um klukkan 23.45 þann 4.ágúst var hringt og beðið um að nokkur teymi yrðu viðbúin því að fara til leitar að pólskum ferðamanni er saknað var við Heklu. Hann hafði farið þangað með hóp en orðið viðskila við hann.
Síðan var það um klukkan 2 um nóttina að óskað var eftir að teymi héldu á staðinn.
Maðurinn fannst um klukkan 5.30 þegar teymi voru að hefja leit.
Teymi sem tóku þátt : Elín/Skotta, Ingimundur/Frosti, Hermann/Monsa, Anna/Kópur. Í viðbragðisstöðu Björk/Krummi
Aug
5
Aðfararnótt sunnudags var óskað eftir hundum til leitar að hollenskum manni er saknað var í Landmannalaugum.
Teymi leituðu hraunið inn að Brennisteinsöldu.
Maðurinn fannst heill á húfi um klukkan 7 um morgunin.
Teymi sem leituðu voru : Elín/Skotta, Ingimundur/Frosti, Anna/Kópur, Halldór/Skuggi.

