
Sep
23
Fjórða sumarnámskeið BHSÍ var haldið á Úlfljótsvatni dagana 19. til 21. september. Fjöldi teyma á námskeiði var 30 en heildarfjöldi á námskeiðinu var 35 manns.
Leiðbeinendur voru Ingimundur, Þórir og Anna Sigríður leiðbeinandanemi og Snorri var námskeiðsstjóri.
Dómarar í prófum voru Auður, Ragga, Helgi, Elín og Maurice.
Æft var á tveimur svæðum í meiri úrkomu en elstu menn muna eftir og jafnframt voru haldin próf á tveimur svæðum alla dagana.
Prófum luku:
A próf:
Björk og Krummi
Hlynur og Moli
Snorri og Kolur
B próf:
Kristinn og Tása
Smári og Skytta
Valur og Funi
C próf:
Emil og Gríma
Guðbergur og Nói
Ekki er hægt að æfa eða halda próf án þess að einhver liggji úti og þökkum við öllum sem hjálpuðu til við það.
Sep
8
Upp úr miðnætti 6. september voru hundar kallaðir út til þess að leita að franskri konu sem saknað var að Fjallabaki.
Konan var á leið frá Landmannalaugum til Hrafntinnuskers en skilaði sér ekki á áfangastað.
Tvö teymi, Anna og Kópur og Hermann og Monsa, fóru ásamt leitarmönnum og bílstjóra frá HSSK og tvö teymi, Snorri og Kolur og Gunnar og Krummi fóru með bíl frá HSG ásamt Kristni sem keyrði.
Tvö teymi höfðu nýlega hafið leit og tvö voru að koma í Hrafntinnusker þegar konan fannst á gangi í nágrenni við Landmannalaugar um kl. 8 um morguninn.

