Enn er leitað að rjúpnaskyttu sem saknað hefur verið frá hádegi í gær við Skáldabúðir í Laxárdal.
Maðurinn er á sjötugsaldri og er reynd skytta.
Teymi leituðu fram á nótt og tóku rúmlega 100 manns þátt í leitinni þegar mest var.
Frá BHSÍ voru: Elín/Skotta, Maurice/Stjarna, Björk/Krummi, Ingibjörg/Píla, Kristinn/Tása, Halldór/Skuggi.
Hlé var svo gert um 4.30 og byrjað aftur í bítið í morgun.
Teymi frá BHSÍ eru í dag: Ingimundur/Frosti, Valur/Funi, Snorri/Kolur, Anna/Kópur, Hörður/Skvísa.

Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út til að leita að manni við Skáldabúðir í Skeiða- og gnúpverjahreppi.
Mannsins hefur verið saknað frá því um hádegi. Hann fór á rjúpnaveiðar ásamt félögum sínum í morgun og höfðu þeir ráðgert að hittast í hádeginu.
Þegar hann skilaði sér ekki kölluðu félagar hans eftir aðstoð.
Nokkur teymi frá BHSÍ eru á leið á staðinn.