Föstudagskvöldið 26.febrúar voru björgunarsveitir á svæði 1 og BHSÍ kallaðar út vegna leit að stúlku í Reykjavík, nánar tiltekið í fossvogshverfinu. Stúlkan fannst heil á húfi skömmu eftir að björgunarsveitir hófu leit.
5 hundateymi frá BHSÍ fóru í útkallið, það voru þau:
Anna og Kópur
Kristinn og Tása
Maurice og Stjarna
Nick og Skessa
Valur og Funi

3 teymi voru í viðbragðsstöðu, það voru þau:
Halldór og Skuggi
Ingimundur og Frosti
Jóhanna og Morris

Miðað við hvernig allt lítur út núna verður æfing næsta sunnudag í Bláfjöllum klukkan 10.
Mæting við bílastæðið vinstra megin áður en komið er að skála.

Kveðja MZ

Skráning er hafin á spjalli sveitarinnar !

Klukkan 21.30 voru teymi kölluð út til leitar að 75 ára gömlum manni er saknað var í Breiðholti.
Maðurinn fannst nokkru síðar í Garðabæ eða um klukkan 22 heill á húfi.
Teymi sem fóru í útkall : Kristinn/Tása, Maurice/Stjarna, Nick/Skessa, Halldór/Skuggi.
Í viðbragðsstöðu : Ingi/Frosti, Anna/Kópur, Björk/Krummi

Haft var samband og beðið um að hundar yrðu í viðbragsstöðu vegna leitar á Langjökli en mæðgin er voru þar í sleðaferð höfðu orðið viðskila við hópinn.
Það var um klukkan 17.30 sem þeirra var fyrst saknað en það var leiðindaveður á jöklinum og skyggni mjög lélegt.
Þau fundust um klukkan 01.30 heil á húfi en köld og hrakin.
Teymi sem voru í viðbragðsstöðu : Ingimundur/Frosti, Maurice/Stjarna / Björk/Krummi, Krissi/Tása, Valur/Funi, Nick/Skessa.

Um klukkan 20 í kvöld barst beiðni um hunda til leitar að barni sem saknað var í Reykjanesbæ.
Barnið hafði farið að heiman fyrr um daginn og ekki skilað sér.
Leit var afturkölluð stuttu seinna er barnið fannst heilt á húfi.
Teymi : Anna/Kópur, Maurice/Stjarna, Elín/Skotta, Ingi/Frosti, Snorri/Kolur, Halldór/Skuggi, Krissi/Tása, Emil/Gríma, Nick/Skessa.
Teymi sem voru í viðbragðsstöðu : Valur/Funi, Björk/Krummi, Jóhanna/Morris.

Næsta síða →