Framhaldsaðalfundur BHSÍ verður haldinn á Reykholti í Árnessýslu (ekki Myrkholti eins og áður auglýst), laugardaginn 8. maí, kl. 20. Nánari upplýsingar má sjá á spjalli sveitarinnar. (Uppfært 3.5.2010)

  • Miðvikudag 14.4 kl.20 Kaldárselshraun við Fremstahöfða
    (N64 01.681 W21 53.474)
  • Sunnudag 18.4 kl.10 BREYTING – Veginum að Djúpavatni er lokað.
    Verðum við Grindarskörð það sem Selvogsgata fer yfir Bláfjallaveg
    (N63 59.538 W21 46.427)
  • Miðvikudag 21.4 kl.20 Heiðmörk – Grunnuvötn
    (N64 03.705 W21 50.957)
  • Sunnudag 25.4 kl.10 Meitilstagl í Þregslunum
    (N63 58.227 W21 26.224)
  • Miðvikudag 28.4 kl.20 Heiðmörk – Tungur undir Löngubrekkum
    (N64 02.945 W21 48.756)
  • Sunnudag 2.5 kl.10 Við Bláfjallaveg í hlíðum Lönguhlíðar
    (N63 58.700 W21 48.673 – þetta hefði átt að vera N63 58.890 W21 50.144 – (NH/3.maí))

Nánari upplýsingar hjá Nick í síma 845 9686.
Sjá einnig GPS staðsetningar

Þann 6.apríl um kl 17:30 voru hundateymi BHSÍ kölluð út vegna leitar sem stóð yfir á svæði sem afmarkaðist af Mýrdalsjökli, Markarfljóti og Mælifellssandi. Þar stóð yfir leit að 3 einstaklingum sem höfðu verið á ferðalagi á jepplingi um gosstöðvarnar, um var að ræða 2 konur og 1 karlmann.  Á þessum tíma höfðu björgunarsveitir þegar fundið báðar konurnar og var þá önnur þeirra látin. Einnig var búið að finna bifreið þeirra mannlausa.

9 hundateymi fóru í útkallið á vegum BHSÍ og 1 teymi var á leiðinni frá Norðurlandi til að taka þátt í leitinni. Alls tóku um 280 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni úr 28 sveitum. Björgunarsveitir fundu karlmanninn um kl 21:30, hann var þá látinn.

Teymi sem tóku þátt í leitinni voru:
Anna og Kópur
Björk og Krummi
Elín og Skotta
Halldór og Skuggi
Ingimundur og Frosti
Jóhanna og Morris
Kristinn og Tása
Nick og Skessa
Valur og Funi

Guðbergur og Nói voru lagðir af stað frá Húsavík til að taka þátt í leitinni.