
Jun
30
Ekki verður boðað til vikulegra æfinga á höfuðborgarsvæðinu í júlí en
næsta æfing verður sunnudaginn 8.ágúst. Þriðja sumarnámskeið hefst
svo föstudaginn 13. ágúst.
Sunnudaginn 11. júlí verður útkallsæfing í Borgarfirðinum – mæting á
Hæl í Flókadal kl.10. Nánari upplýsingar koma inn á innri vef
fljótlega.
Jun
12
Um kl. 7 að morgni 10. júní var beðið um hunda til leitar að manni í Landbroti. Þegar fóru af stað tvö teymi frá Suðurlandi og aðrir voru beðnir um að vera í viðbragðsstöðu. Skömmu seinna voru fleiri teymi kölluð út. Tvö teymi höfðu hafið leit og önnur voru komin á staðinn þegar maðurinn fannst heill á húfi. Teymi sem tóku þátt í útkallinu voru: Björk og Krummi, Jóhanna og Morris, Kristinn og Tása, Nikulás og Skessa, Snorri og Kolur. Auk þeirra tók eitt teymi frá Leitarhundum SL þátt.

