Þann 24.júlí 2010 kl 03:03  barst BHSÍ, ásamt fleiri björgunarsveitum, útkall vegna leitar að manni á Fellsströnd á svæði 5.
4 teymi ásamt hópstjóra fóru á vettvang og um það leyti sem teymin voru að hefja leit fannst maðurinn heill á húfi.
Á leið í útkallið hafði hópstjórinn skipt leitarsvæðinu niður í reiti eftir nýja leitarskipulaginu sem BHSÍ hefur tileinkað sér og um leið og teymin komu á vettvang var leitarsvæðunum halað niður í GPS tæki leitarmanna svo þeir gætu strax hafið leit. Þetta skipulag hefur verið æft í sumar og reynst mjög vel.

Teymin sem fóru í útkallið voru Auður og Skíma, Kristinn og Tása, Ólína og Skutull, Skúli og Patton.
Hópstjóri var Björn Þorvaldsson.

Annað sumarnámskeið BHSÍ var haldið dagana 25. til 27. júní á Húsavík. Gist var í Laufahlíð og lék veður við menn og hunda. Leiðbeinandi var Auður en Bríet, Helgi og fleira gott fólk hljóp undir bagga um skipulag og stjórnun æfinga. Námskeiðsstjóri var Guðbergur.
Fjögur teymi tóku A endumat, Björk og Krummi, Halldór og Skuggi, Ingibjörg og Píla, Skúli og Patton. Ólína og Skutull tóku B próf.
Næsta námskeið er á Gufuskálum dagana 13. – 15. ágúst og fáum við þá góða gesti frá Sarda Lakes í Englandi.

Þann 10. júlí kl. 13 voru hundar kallaðir út til leitar að manni í Reykjavík. Maðurinn fannst heill á húfi um kl. 16:30. Teymi sem tóku þátt í leitinni voru Hörður og Skvísa, Nikulás og Skessa, Snorri og Kolur, Valur og Funi