4. sumarnámskeiði lokið

Fjórða sumarnámskeið BHSÍ var haldið helgina 9. – 11. september.

Námskeiðið var haldið í Þjórsárdal og var gist í góðu yfirlæti í Búrfellsvirkjun. 24 teymi mættu ásamt 4 fígúröntum.

Námskeiðstjóri var Anna Þórunn Björndóttir, leiðbeinendur Auður Yngvadóttir, Ingimundur Magnússon og Maurice Zschirp, leiðbeinandanemar Kristinn Guðjónsson og Snorri Þórisson.

Æft var á tveimur svæðum ásamt því að próf voru dæmd á þriðja svæðinu.

Fimm A- endurmöt voru tekin á námskeiðinu:
Auður Yngvadóttir með Skímu
Hörður Harðarson með Skvísu
Maurice Zschrip með Stjörnu
Valur Marteinsson með Funa
Kristinn Guðjónsson með Tásu

Eitt A próf var tekið
Anna Þórunn Björnsdóttir með Urði