9. Útkall 22. febrúar 2011 – Leit innanbæjar á svæði 1

Þriðjudaginn 22. febrúar 2011 var BHSÍ kallað út ásamt öðrum björgunarsveitum á svæði 1 vegna leitar innanbæjar í Reykjavík að manni sem er alzheimier sjúklingur.

Maðurinn fannst rúmum klukkutíma síðar heill á húfi. Fjögur hundateymi á vegum BHSÍ fóru í útkallið: Eyþór og Bylur, Hafdís og Breki, Halldór og Skuggi, Snorri og Kolur.