Æfingahelgi á Gufuskálum

Helgina 9. – 10. febrúar hélt BHSÍ æfingahelgi í snjóflóðaleit á Snæfellsjökli.

Alls tóku 26 hundateymi þátt auk aðstoðarfólks og var heildarfjöldi á námskeiðinu um 50. Þar á meðal voru nýliðar 1 úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ sem fá sérstakar þakkir fyrir frábæra aðstoð. Vonandi var helgin gagnleg og skemmtileg fyrir þau. Aðstæður voru frekar erfiðar vegna viðstöðulausrar rigningar og voru margir orðnir gegnblautir í lok dags.

Skúli og Patton tóku C próf og óskum við þeim til hamingju með það.

Framundan er vikunámskeið í snjóflóðaleit og munum við hafa bækistöð á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi dagana 7. – 14. mars.