Æfingahelgi á jökli

Um síðustu helgi skelltu félagar BHSÍ sér á Mýrdalsjökul til að æfa snjóflóðaleit.

Gist var í Drangshlíð og æft bæði laugardag og sunnudag upp undir jöklinum. Veður var frábært báða dagana og gengu æfingar mjög vel. Sveitin getur státað af blómlegu nýliðastarfi þessa stundina og eru gæðin mikil á mönnum og hundum.

Aðal vetrarnámskeið sveitarinnar verður svo haldið í mars og stendur það yfir í 5 daga.