Annað sumarnámskeið

Annað sumarnámskeið sveitarinnar var að þessi sinni haldið á Úlfljótsvatni. Gist var í gamla kvennskátaskálanum og æft í nágrenninu. Aðstæður voru nokkuð erfiðar þar sem gróður á svæðinu hefur tekið stórstigum framförum og veðrið var ekki til að bæta það, hiti, logn og flugur í ómældu magni. Þrátt fyrir það tókst námskeiðið með miklum ágætum og var mikill reynslupakki fyrir yngri hundana okkar. Nokkur próf voru tekin á námskeiðinu og stóðust eftirfarandi próf.

C-próf
Anna Þórunn og Hnota
Guðrún Katrín og Líf

A-endurmat
Auður og Skíma
Ólína og Skutull

Við óskum þeim til hamingju með árangurinn