Björgunarhundar heiðraðir hjá HRFÍ

Þann 11. desember heiðraði Schäferdeild Hundaræktarfélags Íslands (HRFÍ) tvo björgunarhunda sem náðu A-prófi á þessu ári. Þetta voru þau Gríma og eigandi hennar Emil sem eru í BHSÍ og leitarhundateymið Hugi og Theodór. Þau fengu vegleg verðlaun fyrir árangurinn.

Þetta er í fyrsta skipti sem próf frá björgunarhundasveitunum er viðurkennt sem vinnupróf hjá Schäferdeild HRFÍ.

Nánari fréttir er hægt að lesa á heimasíðu Schäferdeildar HRFÍ http://schaferdeildin.weebly.com/

BHSÍ óskar teymunum til hamingju með viðurkenningarnar.