Dýrheimar færa BHSÍ vesti á hundana

Jökull og Stjarna

Dýrheimar sem eru umboðsaðili Royal Canin hundafóðurs á Íslandi, lét fyrir nokkru framleiða vesti á hunda sveitarinnar, sem þeir geta notað við leitir og æfingar. Útkallshundar sveitarinnar fengu afhent vesti merkt „Björgunarhundur“ og einnig verður þeim sem eru ekki komnir á útkallslista gert kleift að fá ómerkt vesti. Þess má geta að Royal Canin er styrktaraðili BHSÍ.

Þakka menn og hundar í Björgunarhundasveit Íslands, Dýrheimum kærlega fyrir þennan frábæra styrk.