Enn leitað á Nesjavöllum

Enn er leitað að 26 ára gömlum manni á Nesjavöllum en bifreið hans fannst þar um klukkan 17:00 í gær.

Teymi sem hófu leit í gærkveldi leituðu þar til um klukkan 05:30 í morgun en þá fóru flestir í hvíld. Kallað var svo aftur út rétt fyrir 8 í morgun og er eitt teymi sem hefur verið við leit síðan þá. Ráðgert er að það bætist í hópinn um miðjan dag og eru meðal annars teymi á leiðinni frá Patreksfirði.