Fjórða námskeið sumarsins á Gufuskálum

Dagana 10.-12. september var 4. sumarnámskeið BHSÍ haldið á Gufuskálum. Alls tóku 23 teymi þátt og æfðu í misjöfnu veðri á þremur svæðum undir leiðsögn Auðar, Ingimundar og Þóris.

Eftirfarandi próf voru tekin:
Helgi og Gæskan B
Auður og Skíma A endurmat
Ingimundur og Frosti A endurmat
Kristinn og Tása A endurmat
Smári og Skytta A endurmat
Næsta námskeið verður haldið um miðjan október

Um þann mund sem þáttakendur héldu heim á leið var kallað út til leitar í Skagafirði og lögðu 8 teymi af stað í útkallið sem lauk skömmu síðar þegar maðurinn fannst heill á húfi.