Hörður og Skvísa sumarið 2007

Á þessu myndbandi sést þjálfun víðavangsleitarhunds. Þetta er teymið Hörður og Skvísa en Skvísa er rúmlega eins árs og nýkomin með C-gráðu í víðavangsleit þegar þetta er tekið upp, sumarið 2007. Skvísa lætur Hörð vita að hún hafi fundið með því að gelta.

Þar sem Skvísa er enn í grunnþjálfun á þessum tíma er hún hvött til að gelta og hrósað bæði hjá eigandanum og fígúrantinum til að „festa“ geltið enn betur hjá henni í þessu ferli.

Eins og kemur fram á myndbandinu er upptökuvél bæði hjá eigandanum og fígúrantinum (reyndar slökknaði á upptökuvélinni þegar Skvísa var hjá fígúrantinum í fyrsta skiptið).