Hundur mánaðarins – Líf

Hundur mánaðarins er að þessu sinni litla skellibjallan okkar hún Líf 🙂 Svona lýsir Guðrún Katrín eigandi hennar henni :

Líf er þriggja ára Labrador tík. Hún var sérvalin úr lofandi goti frá mikilli vinnu og veiðihundaræktun, Kolkuós labrador á Akranesi og er einn gotbróðir hennar til dæmis sprengjuleitarhundur lögreglunnar. Líf er með A próf í víðavangs- og snjóflóðaleit og B próf í rústaleit. Hún er annar tveggja útkallshunda Íslensku alþjóðasveitarinnar svo við getum átt von á því með nær engum fyrirvara að vera kallaðar til landa þar sem jarðskjálfti hefur valdið miklum skemmdum.

Líf stendur undir nafni, er sérlega lífleg og lét hafa fyrir sér sem hvolpur en fjarlægðin gerir fjöllin blá og hún er orðin ósköp þægileg í dag þótt hún geti verið óttaleg brussa. Hún er mjög ör og uppátækjasöm og þarf sífellt að hafa eitthvað fyrir stafni. Eins og sönnum labrador sæmir vill hún helst alltaf halda á einhverju í kjaftinum og hún sleppir engu tækifæri til að sulla í vatni. Hún veit ekkert betra en að fara í langa göngu, hjóla- eða gönguskíðaferð en gott úthald leitarhundanna okkar skiptir sköpum þegar leitir dragast á langinn.