Jólaæfing í Reykjadal 19. Desember
Nokkrir vaskir félagar geta borðað allan jólamatinn án samviskubits, en þeir skelltu sér í létta gönguferð niður Reykjadalinn í dag. Keyrt var inn Ölkelduháls og labbað niður dalinn, það var kalt í veðri og blés töluvert en fínasta veður var þegar komið var neðar í dalinn. Björgunarmenn göntuðust með það að gaman væri að skella sér í heita lækinn enda alvöru útivistarfólk ! auðvitað vissu allir að verið væri að grínast enda færi ekki nokkur heilvita maður í lækinn í 10 stiga frosti !!!! Okkur kom því töluvert á óvart þegar
við gengum fram á þrjá ÁSTRALA sem lágu í heita læknum og höfðu það svona líka notalegt :D
Nú við stoppuðum í grenndinni og borðuðum nesti og skömmuðumst í sníkjudýrunum sem voru öll jafn hissa á að fá ekki að éta nestið hjá eigendum sínum ! Nú áfram var svo haldið og gengum við svo aftur fram á erlenda ferðamenn sem voru illa búnir og orðið nokkuð kalt, ekki vildi betur til en svo að annar göngugarpurinn dettur í lækinn og var orðið verulega kalt, nú björgunarsveitamennirnir sem voru ekki bara með sjúkrabílinn í bakpokanum heldur líka auka föt, drifu stúlkuna í auka föt og skipuðu henni svo að ganga rösklega til að ná hita í sig. Allir komust heilir niður og þökkuðu þau kærlega fyrir "björgunina" :)
Það var auðvitað tekið smá Boot Camp !
Á æfinguna mættu:
Anna Sigga og Kópur
Sólveig og Salka
Jóhanna og Morris
Drífa og Lúkas og Casey
Dóri og Skuggi
Steinar og Jökull voru sérlegir trússarar :)
Ég vil nota tækifærið og óska öllum félögum okkar nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári :)
-Fyrir hönd suðurlandsteyma, Jóhanna :)