Klikker kynning

Síðastliðin þriðjudag var haldin kynning á „klikker“ þjálfun. En þau Monica og Rúnar hjá Töfralausnum komu til okkar í hús Hjálparsveita Skáta í Hveragerði og kynntu fyrir okkur helstu þætti klikkerþjálfuninnar. Fyrirlesturinn var bæði bóklegur og verklegur. Virkilega fróðlegt og spennandi og gaman að sjá hvernig hundarnir brugðust við, en flestir hundarnir höfðu aldrei kynnst þessari jákvæðu og skemmtilegu þjálfunaraðferð ! 🙂

Við þökkum Monicu og Rúnari kærlega fyrir komuna og hvetjum alla hundaeigendur að kynna sér málin hjá þeim. Fleiri upplýsingar er að finna á http://tofradogs.com/

kveðjur

-Bhsí Suðurland.