Leit hefur enn engan árangur borið

Leit að rjúpnaskyttunni sem saknað hefur verið síðan á laugardag hefur enn engan árangur borið.

Lögð var áhersla á að þéttleita svæði í 3 km radíus frá þeim stað er maðurinn sást síðast auk þess sem leitað var lengra en gert hefur verið síðustu tvo daga.

Teymi frá BHSÍ voru: Ragga og Jökull, Halldór og Skuggi, Elín og Skotta, Anna og Kópur, Gunnar og Krummi og Maurice og Stjarna. Nokkur teymi munu fara í áframhaldandi leit á morgun.