Sumarnámskeið Vaglaskógi

Annað sumarnámskeið sveitarinnar á þessu ári var haldið í Vaglaskógi nú um helgina. Mæting var eins og alltaf, mjög góð og veðrið í fínasta lagi. Mikil fjölskyldustemning var á námskeiðinu þar sem langflestir tóku með maka og börn og var yngsti námskeiðsgesturinn aðeins eins árs. Æfingar fóru fram á þremur svæðum og gengu vel bæði hjá byrjendum sem lengra komnum.

Eitt próf var þreytt á þessu námskeiði og voru það Katrín og Gutti sem stóðust C próf.

Á laugardagskvöldinu var grillað og keppt í ýmsum íþróttagreinum og var það hin mesta skemmtun og var hart barist um sigur.

Næsta úttektarnámskeið verður haldið á Vestfjörðum um miðjan ágúst.