Útkall 19. apríl. Leit að manni í Reykjavík

Rétt eftir miðnætti þann 19. apríl barst beiðni um hunda til leitar að ungum manni sem saknað var í Reykjavík.

Fjögur teymi hófu þegar í stað leit og leituðu fram til klukkan 6 um morgunin. Fjórum tímum seinna eða rúmlega 10 var svo aftur kallað út og héldu fjögur teymi til leitar.

Leit var svo afturkölluð um klukkan 11:40. Maður fundinn heill á húfi.

6 teymi: Ingimundur/Frosti, Elín/Skotta, Hermann/Monsa, Gunnar/Krummi, Ragga/Jökull, Maurice/Stjarna.