Útkall 7. maí. Leit að bankaræningja.

Klukkan rúmlega 10 í morgun óskaði lögregla eftir svæðisleitarhundi til að leita að manni er hafði rænt útibú Landsbankans í Hafnarfirði fyrr um morguninn.

Teymi hóf leit um klukkan 10:30 og leitaði hraunið milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Leit teymis lauk klukkan 13:30 án árangurs og er bankaræningjans enn leitað þegar þetta er skrifað. Leit fór fram í samráði við svæðisstjórn á svæði 1.

1 teymi: Ingimundur og Frosti.