Leit að Brasilíumanni hætt

Um klukkan 22:30 í gærkvöldi 4. apríl var skipulagðri leit að brasilíumanni, Ricardo Correia Dantas sem leitað hefur verið síðan á laugardagskvöld hætt.

Í gær voru leituð svæði víða á Suðurlandi, m.a fjörur, opin svæði og höfnin á Stokkseyri. Ekki verður leitað meira með skipulögðum hætti, nema að Lögreglunni á Selfossi berist nýjar upplýsingar um ferðir hins týnda.