Útkall í Esjunni 12. júlí

Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um kl. 21:00 í kvöld til leitar að 65 ára gömlum manni sem hafði farið í göngu á Esjuna um miðjan dag og ekki skilað sér heim.

Sérhæfðir leitarhópar, undanfarar, alls 60 manns og 4 björgunarhundar tóku þátt í leitinni. Um kl. 22:00 fannst maðurinn kaldur og þrekaður eftir að hafa komist sjálfur niður á veg.