Útkall við Gullinbrú 4. júlí

Klukkan 19:50 var óskað eftir hundum til aðstoðar við leit að líki sem vegfarendur töldu sig hafa séð í sjónum við Gullinbrú. Þrjú teymi frá sveitinni tóku þátt.

Á sjó voru það Þórir og hundurinn Þengill sem leituðu á bát. Og svo voru tvö teymi við leit í fjörunum. Ekkert fannst þrátt fyrir víðtæka leit lögreglu, björgunarfólks og hunda.